Anda með nefinu

Það er einkenni allra hamfara náttúrunnar að hópur fræðimanna kemur í kjölfarið og fer á mikið hugarflug um leið og sögulegri þekkingu er komið á framfæri.

Gott er að hugsa fram í tíman og vera búin undir það versta en er skynsamlegt að mála alltaf andskotann á veggin og gera ráð fyrir endalokum heimsins.

Það er nefnilega svo að mikið er til að fólki sem ekki má við svona hræðslu fræðslu og betra fyrir menn að anda með nefinu og velja orð sýn í fjölmiðlum með tilliti til þess sem er að gerast en ekki fara að gera sér í hugalund hvað gæti gerst ef allt færi á versta veg.

Ísland er nefnilega einn risastór tappi í eldgíg sem nær inn að möttli og óþarfi að velta sér upp úr viðbragðsáætlun eða hugleiðingum um slíkt gos.

Anda með nefinu kæra fólk, líka gott að anda í bréfpoka smá stund.


mbl.is Þurfum að fylgjast með Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Ísland er nefnilega einn risastór tappi í eldgíg sem nær inn að möttli"

Góður. Um að gera að tala svona varlega og vera ekkert að hræða fólk (-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 21.3.2010 kl. 14:36

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Full ástæða er til að hafa vaðið vel fyrir neðan sig þegar reiknað er með gosi á þessu svæði. Kötlugos fylgja oftast í kjölfarið á gosi í Eyjafjallajökli. Kötlugos eru yfirleitt á hamfaramælikvarða.

Dæmi er um að flóð úr Mýrdalsjökli hafi farið fram með slíkum krafti, auk þess að eyða öllu sem á vegi þeirra verður, valdið flóðbylgju sem olli tjóni í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og Grindavík.

Betra er að fara ögninni lengra en skemmra í varúðarráðstöfunum því of seint er að gera eitthvað eftir að ballið byrjar.

Komi upp sú staða að yfirvöld hafi ekki gert viðeigandi ráðstafanir þrátt fyrir viðvaranir, mun ekki skorta gagnrýni og skammir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.3.2010 kl. 14:50

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Tek undir aðvörunarorð Axels

Ólafur Ingi Hrólfsson, 21.3.2010 kl. 14:55

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Það er fyrir löngu búið að gera rýmingaráætlanir og æva þær, þannig að þessi gagnrýni á heimsendaspár vísindamanna er bara mitt einkagrín.

Hef svona smá gaman af þessari skelfingarþrá fjölmiðla og raungreinamönnum í hugarflugi.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.3.2010 kl. 16:46

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Bragi, er ástæða til að óttast annað en óttan sjálfan ef þú býrð hér á landi á annað borð

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.3.2010 kl. 16:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband