Afskaplega döpur lagasetning

Mis gáfuleg lögin sem Alþingi setur og samþykkir


mbl.is Spólandi vagnar stöðvuðu umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Hvaða lög ertu að tala um ?

Nær væri að gangrýna Reykjavíkur borg fyrir að bregast ekki við hálkuni og SALTA !

Birgir Örn Guðjónsson, 4.5.2018 kl. 11:05

2 Smámynd: Aztec

Birgir, það var saltað í Reykjavík, en starfsmenn Kópavogs voru ekki að sinna skyldum sínum og byrjuðu ekki að salta fyrr en eftir dúk og disk, eftir að allt var komið í óefni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessar liðleskjur eru ekki að standa sig, fyrir fáeinum árum byrjuðu þeir ekkert að moka fyrr en fleiri hundruð bílar sátu fastir.

Annars er það rétt hjá Þorsteini, að lagasetningin er bjánaleg, það er í fyrsta lagi ekki hægt að hafa fasta dagsetningu fyrir dekkjaskipti á þessu landi með óstöðugasta veðurfar í heimi. Eða þá að færa dagsetninguna fram til 17. júní, þegar þó snjóaði einu sinni fyrir mörgum árum. En það er borin von að Alþingi breyti neinu um þetta. Enda eru þingmenn svo vitlausir að halda að sumarveður komi með sumardeginum fyrsta.

Lagasetningin er í öðru lagi hjákátleg, því að það hefur verið sýnt fram á með úttekt að svifrykið sé einungis að litlu leyti (15%) nagladekkjum að kenna, restin er út af lélegri eða engri götuhreinsun. Sama hvað Dagur rembist eins og rjúpa við staurinn, vísindaleg rannsókn trompar pólítískar getgátur hans.

En svo er líka annað: Malbikið sem notað er á götum og vegum á höfuðborgarsvæðinu er með því lélegasta sem þekkist, það er ekkert skárra en olíuborin möl. Endingin er á við kaldan hafragraut. Ég hef ferðast um alla Evrópu á bíl og aldrei séð annað eins fúsk.

Aztec, 4.5.2018 kl. 14:07

3 Smámynd: Aztec

Það er enn annað: Vitaskuld á að sekta grimmilega fyrir lagabrot eins og að fara yfir á rauðu ljósi eða að tala í síma eða aka undir áhrifum, brot sem geta orsakað slys. Mín vegna mætti líka sekta svínun og skort á stefnuljósagjöf, sem geta orsakað árekstra, en það er ekki gert. Meinið er að það er einungis hægt að sekta ef götulöggan sér það og eins og allir vita þá er hún vart sjáanleg á götum úti, sennilega búið að skera hana niður til að nota fé í gæluverkefnisdeildir.

Hins vegar er alveg út úr kú að hækka sektir fyrir að vera á nagladekkjum, sem ekki orsaka nein slys eða árekstra nema síður sé, úr 20 þúsundum í 80 þúsund. Það er hreint peningaplokk, ekkert annað.

Aztec, 4.5.2018 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband