Hræsni embættismanna

Enn einu sinni kemur embættismaðurinn Biskup Íslands, fram sem höfundarrétthafi kristinnar trúar, og vill tryggja undirmönnum sýnum aðgang að áhrifagjörnum börnum.

Því hafa menn svona litla trú á málstaðnum, er engin von til árangurs nema það náist til þeirra sem ekki geta greint muninn á skynsamlegri siðfræði eða trú sem byggist á bælingu og þrælsótta við valdhafa.

Kristin trú hefur verið notuð sem stjórntæki valdhafa í höndum hempuklæddra starfsmanna, í gegn um aldirnar, og virðist sem þessi niðurlæging og misnotkun trúarinnar virðist aldrei ætla að enda.

Og enn standa víxlararnir í musterunum upp til að verja tekjulindina og stjórntækið, en ekki trúna.

 


mbl.is Biskup sendir Siðmennt opið bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ætla ekkert að kommenta á pistilinn, heldur bara að segja að það er gaman að þú ert farinn að blogga aftur. 

Anna Einarsdóttir, 7.12.2007 kl. 17:00

2 Smámynd: Hilmar Einarsson

Óskaplega er gaman að sjá hversu menn geta verið "umburðalyndir" í mannheimum.

Það virðist sem það þykji orðinn manndómur í því að kyrja í sífellum bunugangi og skítkasti út í Biskup Íslands.  það virðist sem englabossarnir í liði svokallaðra trúleysingja ætli sér  byrja annan rúnt af þessum fíflagangi þegar það er orðið deginum ljósara að Siðmennt virðist loksins vilja eins og biskup orðar það "styðja kristinfræðikennslu og trúarbragðafræðslu í skólum, eins og fram kemur í opnu bréfi félagsins til mín. Það er sannarlega gleðilegt ef Siðmennt vill taka þannig höndum saman við Þjóðkirkjuna"

Hilmar Einarsson, 7.12.2007 kl. 19:24

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Takk Anna

Mitt umburðarlindi gagnvart svokölluðum kirkjunnar mönnum er nánast ekkert Hilmar. Blóði drifinn sagan af stríðsátökum og hörmungum, með blessun sjálfskipaðra talsmanna guðs á jörðu í gegn um aldirnar, í bland við titla og fégræðgi embættanna, er fyrir mér meira einkennandi fyrir talsmenn þess sem hefur víst horn og hala.

Ég veit ekki til þess að þörf sé á "túlkendum" orðsins, það er hvers og eins að skilja á sinn hátt, eftir því hvar á vegi andlegs skilnings og þroska, hann er staddur.

Og hvílíkur hroki, að telja sig geta verið talsmann guðs á jörðu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 7.12.2007 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband