Kjánalegt og skaðlegt

Svona öfgar skaða málstað mótmælenda og fæla frá, þetta er einmitt svona skemmdarverk á málstaðnum sem nýtast stjórnvöldum til varnar, en skaðar hófsama mótmælendur sem vilja löngu tímabærar breytingar.

Fólk verður að gæta hófs og að brenna sundur kapla eða ráðast á starfsmenn fjölmiðla er forkastanlegt.

Ég verð að segja að lögreglan hefur staðið sig vel, gætt hófs og reynt að hemja öfgafólk innan sem utan dyra, svona uppákomur eru ekkert nema stuðningur þeirra sem vilja fara að berja aðeins á mótmælendum til að stöðva þennan vott af uppreisn.

Ég styð mótmæli fólks sem ekki ræðst á aðra eða  veldur varanlegu eignartjóni, eggja og tómatakast eða skyr og jógúrtslettur er vel ásættanlegt, en í Goðana, Spámanna og Guða bænum, ekki missa þennan vorboða í viðreisn Lýðræðis á Íslandi út í svona vitleysisgang.

Verum ábyrg í andstöðunni en gefumst ekki upp á að breyta.


mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

ágætt innlegg, ég er þó að velta fyrir mér hvað þarf til að eitthvað breytist? friðsamleg mótmæli hafa ekki dugað vel fram að þessu. Stjórnin verðu að fara að bregðast við með einhverju öðru en að tala niður til mótmælenda og almennings.

Sævar Finnbogason, 31.12.2008 kl. 16:17

2 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Ég er á sama máli, en hvað vitum við um það sem þarna gerðist. Við höfum bara heyrt söguna frá fréttamönnum sem fá ekki háa einkunn þegar kemur að umfjöllun mótmæla á Íslandi.

Þegar þó nokkur prósent Íslendinga safnast saman viku eftir viku til að MÆLA á móti þeim sem skuldsettu þjóðina, þá er áhugi mbl ekki mikill.

Þegar nokkrir ungir Íslendingar safnast saman og fimm þeirra SKEMMA sjónvarpskapla, hvað ætli að sé HELST Í FRÉTTUM? (sjá mynd)

Jón Þór Ólafsson, 31.12.2008 kl. 17:45

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hér er tilraun til að undirbúa breytingar innan ramma lagana: http://www.facebook.com/group.php?gid=52773175109

Ég sé ekki annað en boð um aðra valkosti til að kjósa, sé eina lausnin til að breyta einhverju með afgerandi hætti.

Koma fulltrúum hins venjulega Íslendings inn á þing, til að gera nauðsynlegar lagabreytingar, en láta ekki stjórnmálaaðalinn sitja einan þarna í þessu afsprengi Bresks yfirstéttarklúbbs, en þannig virðist Alþingi Íslendinga vera orðið í dag.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 31.12.2008 kl. 17:49

4 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sammála nafni.  Gleðilegt ár annars og gangi þér vel!

Þorsteinn Sverrisson, 1.1.2009 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband