Þriðjudagur, 31. október 2023
Er heiladauði forsenda utanríkisstefnu Íslands
Hvenær fer fólk að nota höfuðið, og leysa úr ágreining með samtölum en ekki vopnum?
Hvenær áttar fólk sig á að það að hætta samskiptum og samtali er uppgjöf en ekki sigur?
Undirlægjuháttur er ekki leið til vináttu, þar liggur leið þeirra fyrirlitlegu.
Talsmenn og konur átaka ætla aldrei sjálf að berjast, þau ætlast til þess að aðrir fórni limum og jafnvel lífi fyrir þeirra skrif og orð. Þetta er fólkið sem hengir á hvert annað heiðursmerkin á meðan þeir sem börðust fá skertar örorkubætur eða kalda gröf.
![]() |
Harðir bardagar á Gasasvæðinu í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 25. október 2023
Ævarandi skömm
Það er því fólki sem hvetur til átaka og styður við stríðsrekstur sameiginlegt, að enginn af þessum digurbarkalegu æsingar mönnum og konum mun fara í fremstu víglínu.
Allt þetta lið ætlast til þess að aðrir fórni lífi sínu, eða örkumlist fyrir þeirra orð.
Sjálfskipaðir "sérfræðingar" í varnarmálum belgja sig út og hvetja til átaka, en eru of kjarklausir til að fara sjálfir á vígvöllinn.
Hættum að hlusta á raggeiturnar sem eru að etja saman fólki og færa falsfréttir sem réttlætingu fyrir mannfórnum.
Höfum sjálf samband við "Óvininn" og þá kemur í ljós að það er nánast enginn munur á þeim og okkur, flest fólk er friðsamt og vill frið, öryggi og samskipti, en öfgaöflin beita lygum og fölsunum til að skapa sundrungu sem þóknast stríðs iðnaðinum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. október 2023
Friðsemd er ekki tengd kyni
Í fyrsta skipti Íslandssögunar, þegar kona var forsætisráðherra og kona varð utanríkisráðherra, hófu Íslendingar beina þátttöku í stríðsrekstri í Úkraínu, og studdu þjóðernishreinsanir í Palestínu.