Þriðjudagur, 1. október 2019
Rétttrúnaðarskýrsla frá kaldastríðstímanum
Mikið afskaplega var dapurt að renna í gegn um þessa Rétttrúnaðarskýrslu sem var sem minningargrein um pólitískar skoðanir hægri öfgamanna frá kaldastríðstímanum (sjá til dæmis bls 109 til og með bls 111).
Er ekki komin tími á að fá fagfólk til að gera svona úttektir í stað gamalla staðnaðra lögmanna sem titlast oft sem "sérfræðingar í varnarmálum" þó hvergi finnist skráð sú sérfræðimenntun sem menn þurfa af hafa til að bera slíka titla.
Áratuga seta í opinberum nefndum og ráðum gerir fólk ekki að sérfræðingum, frekar svona að þaulsetnum flokksmönnum á kostnað skattgreiðenda.
Við eigum mikið úrval af fagfólki með sérfræðimenntun sem hefur þann þroska og þá þekkingu sem þarf til að skrifa hlutlaus úttekt án þess að fara í pólitískt trúboð eins og launaðir pennar fyrir erlenda hagsmunaaðila.
Mæli með því að þessi skýrsla fari í tætarann og fagfólk verði fengið í verkefnið.
Kappsmál að styrkja stoðirnar tvær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Bloggar, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Athugasemdir
;"þið getið ekkert eymingjarnir ykkar nema með okkar forsjá" Björn er reyndur í stofnanamàli sem ég túlka svona. Kveðja.
Helga Kristjánsdóttir, 2.10.2019 kl. 00:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.