Laugardagur, 7. september 2024
Ofbeldi talað upp
Það er merkilegt hvað samhengi og yfirsýn er oft af skornum skammti.
Stjórnvöld vopna lögreglu og réttlætingin er vísun til fjölda útkalla sérsveitar, flest þau útköll virðast nánast til að sækja kött upp í tré, en markmiðið virðist vera að ná sem flestum skráningum á sveitina, enda réttlæting útgjalda bundin tilvísun í fjölgandi útköll.
Stjórnvöld veita milljörðum í vopnakaup og draga hingað vopnaðar sveitir og búnað frá NATO og USA, þá er Landhelgisgæslan gerð að þjónustustofnun fyrir herinn, flytja mannskap og birgðir til kjarnorkukafbáta, sinna viðhaldi og húsvörslu ásamt öryggisgæslu fyrir herinn upp á Keflavíkurflugvelli.
Stjórnöld standa fyrir samæfingum hers, björgunarsveita og heilbrigðisþjónustu til að samhæfa þessa aðila enda er verið að virkja þessi sjálfboðaliða samtök til að geta nýtt þau í þágu hernaðar og komandi aukinna átaka.
Fjölmiðlar sem flestir eru orðnir áskrifendur að fjármagni sem ráðherrar hafa úthlutað þeim gjamma sem huglausar málpípur stjórnvalda og taka þátt í að tala upp ofbeldishegðan unglinga, vopnaburð og þá ógn sem af þeim stafar.
Börnin okkar sem eru flokkuð í samfélaginu sem ógnandi vandamál eru flest öll hugsandi kærleiksbirnir sem vilja öllum vel og hegða sér þannig að við foreldrar getum verið stolt.
Ég sé ekki þessa skelfingu og ógn sem verið er að tala upp, var samt að starfa sem leigubílstjóri um helgar og hef aldrei fundið þann einstakling sem ekki er hægt að ræða við.
Fólki líður stundum illa og þá má finna lausn, það er alger óþarfi að beita hörku og ofbeldi enda skapar það frekari vandamál og stigmögnun mun eiga sér stað, þetta er þekkt hegðunar munstur erlendis frá.
Börn, ungmenni og fullorðnir, sjá hvað þú gerir en heyra illa hvað þú segir.
Ég saka því stjórnvöld, ráðherra, lögreglu og blaðamenn um skapa vandann sér til framdráttar.
Stjórnvöld fyrir að fjármagna vopnakaup og draga hingað til lands ófrið.
Ráðherra fyrir að tala upp ófrið og reyna að skapa ótta til að ná í atkvæði óttasleginna.
Lögreglu fyrir að tala upp vanda til að tryggja sér fjármagn og lagaheimildir til valdbeitinga.
Og blaðamenn fyrir að selja sig sem huglausa talsmenn gegn betri vitund til ófriðar og ótta mögnunar og jafnvel fyrir flutning einhliða áróðurs og falsfrétta til að þóknast valdinu.
Það eru ömurleg örlög að upplifa það að Íslenskir ráðherra vinna í því að svíkja þjóðina og gera það sem þeir geta til að koma okkur undir erlend yfirráð.
Hver getur vísað til þess að hernaður og vera seturliðs hafi verið umrætt málefni í aðdraganda kosninga, hvenær hefur þjóðin fengi sinn vilja til friðar og sátta framkvæmdanna.
Hvað ætlum við lengi að styðja, og taka þátt í að myrða fólk erlendis?
Þetta eru miklu grófari mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Löggæsla, Menntun og skóli | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.