Ekki gert í samráði við þjóðina

Enn einu sinni ganga Íslenskir stjórnmálamenn gegn vilja þjóðarinnar og auka algerlega án umboðs frá henni útgjöld til hernaðar.

Við höfum aldrei gefið þessum einræðisherrum og konum heimild til að standa í stríðsrekstri við Rússa, né samþykkt uppbyggingu á Íslenskum her undir feluhjúp Landhelgisgæslu.

Hér er embættismenn að byggja upp Íslenskan her með byggingu mannvirkja, stórfelldra vopnakaupa og stunda blekkingaleik við þessa iðju sem mér vitanlega þeir hafa ekkert umboð til að framkvæma.

Ísland er orðið alræðisríki þar sem lítill hópur embættis og ráðamanna hefur stolið lýðræðinu.


mbl.is Ekki komin hingað til að segja bara eitthvað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Þorsteinn.

Þú hefur algjörlega rétt fyrir þér hvað þessa nýju kvenleiðtoga okkar snertir.

Óskiljanlegt hatur þeirra á vinum okkar Rússum eru mikil vonbrigði, því grimdarverk á borð við slátrun Ísraelsmanna á varnarlausum Palestínumönnum virðist t.d. ekki raska ró þeirra.

Ég er þess fullviss, að einungis lítið brot af Íslendingum styður þá ráðstöfun þeirra, að forgangsraða fleiri milljörðum í stríðsrekstur Evrópusambandsins í Úkraínu, í stað óteljandi aðkallandi verkefna hér á landi.

Jónatan Karlsson, 24.2.2025 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband