Ekki í okkar umboð né með samþykki.

Við óskum þess að Íslensk stjórnvöld og embættismenn, hætti nú þegar allri þátttöku í stríðsrekstri og fjármögnun átaka, sem og stuðli að samtali deiluaðila.

 

Þjóðin hefur ekki gefið umboð til vopnakaupa, vopnaflutninga né þátttöku í stríðsátökum eða nýjum varnarbandalögum.

Þjóðin hefur ekki veitt umboð til uppbyggingar á hernaðarmannvirkjum, til vopnakaupa, þjálfunar eða þjónustu við her með kjarnorkuvopn við Íslandi.

 

Þessar heimildir hefur hópur stjórnmálamanna tekið sér, sem og nokkrir opinberir starfsmenn án aðkomu þjóðarinnar, og falið áformin með þögn í aðdraganda kosninga. Það má líta á þetta sem vísvitandi blekkingar gagnvart kjósendum sem og umboðssvik.

 

“óvinurinn” sem er ýmist Kína eða Rússland, er heimatilbúin blekking til að réttlæta nánast rán úr ríkissjóð, því hver gaf stjórnmálamönnum umboð til eflingar vígbúnaðar erlendis fyrir marga miljarða sem og hér á Íslandi?

Rökin og réttlætingin fyrir þessum ákvörðunum eru almennt ímynduð ótta þvæla, líklega byggð á slæmri samvisku eftir stuðning við fjölda innrás NATO ríkjanna, og niðurbrots innviða með vopnavaldi í Írak, Serbíu, Afganistan, Líbýu og svo framvegis.

 

Engar rekjanlegar eða áþreifanlegar sannanir hafa verið færðar fyrir ásökunum, um skaða sem okkur á að hafa verið unninn, að hálfu Kínverja eða Rússa frá upphafi Íslandsbyggðar.

Engar sannanir hafa verið færðar fyrir ásökunum um skemmdarverk né fyrir ásökunum um gagna árásir á innviði Íslands eða fyrir ásökunum um njósnastarfssemi.

Staðhæfingar um njósnir og gagna árásir hafa komið frá hagsmunaaðilum, sem lifa á því að viðhalda ótta og selja varnir gegn hugsanlegum óvin.

Allur þessi ótta áróður er fluttur af fjölmiðlum á framfærslu ríkissjóðs og enginn krefst sannana á þeim fullyrðingum sem birtar eru sem fréttir til almennings.

 

Sérsveit lögreglu er kölluð ítrekað út til að auka tölur sem notaðar eru sem rök fyrir hærri fjárveitingum sem og til að skapa lögreglumönnum auknar tekjur vegna slíkra starfa.

Það er innbyggður fjarhagslegur hvati fyrir lögreglu og landhelgisgæslu til að ýkja hættur og ef nógu hátt er hrópað úlfur, úlfur þá fá þessar stofnanir verðlaun í formi fjárveitinga.

 

Frelsi einstaklinga er skert meira og meira með hverju árinu, á þeim forsendum að verið sé að verja fólk gegn allskonar skelfingu, vegna hugsanlegra og oftast ímyndaðra óvina.

Eftirlit er aukið, heimildir eru veittar til að virða ekki einkalíf né mannréttindi, og vopnakaup sem og birgðasöfnun vopna er heimiluð vegna öryggis, en öryggis hverra?

 

Afl fjölmiðlar er nýtt til dreifingu falsfrétta frá talsmönnum stríðsátaka, sem stöðugt saka alla hina um falsfréttaflutning. Sannleikurinn er alltaf fyrstur til að falla í stríðsátökum, og opið internet hefur gert aðilum erfiðara að ritstýra, þá er gripið í að draga úr trúverðugleika með falsfrétta ásökunum.

 

Öll átök enda með samtali deiluaðila og þannig höfum við leyst okkar ágreining í aldanna rás.

Neitum að nota eða styðja ofbeldi í stað samtala og fordæmum öll slík áform sem ganga gegn okkar grunn gildum, um frið og farsæld fyrir alla.

 

Viljir þú lesandi góður styðja við kröfu um fríð, þá er undirskriftasöfnun á þessari slóð:

https://island.is/undirskriftalistar/2eccaf4a-83f8-4be3-be4c-1f3ff1cbc839?fbclid=IwY2xjawKS-JdleHRuA2FlbQIMQBicmlkETBlSFVxUEdsTnZwQmhNM1pOAR7CzkT-Th-VorSYLQmr_4Lid4uYNBPMGt7iwiZwbo72JGasEM_Nmp-xkVcHyQ_aem_Z_ueuSE-vOH1LxzxZXK4Yw


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband