Óttinn selur vel

Magnað að sjá og lesa hversu margir virðast fitna og dafna á því að byggja upp og viðhalda vanlíða í samfélaginu með óttaýkjum.enginn lærir af sögunni

Fyrirtæki, stjórnmálamenn og einstaklingar byggja upp góða tekjustofna og auka áhrif sín með því að byggja upp og viðhalda vanlíðan hjá einstaklingum, þessir aðilar nota öll tiltæk tækifæri og meðul til að sá vantrausti, ótta og vanlíðan á meðal fólks.

Opinberir starfsmenn og stofnanir ýkja hugsanlega ógn til að réttlæta fjárveitingar til sýn og er alveg sama um þá vanlíðan sem byggist upp á meðal fólks sem ekki sér í gegn um blekkingarleikinn. Landhelgisgæslan sem nú gegnir hlutverki þjónustuaðila fyrir heri fær fjárveitingar til að kaupa búnað með því að spila á ótta vegna ýkjufrétta án sannana, gaspra um skemmdaverk í útlöndum og hafa byggt upp sprengisveit sem kallar í sjónvarpsstöðvarnar þegar tækifæri gefst til að halda fjölmiðlasýningar með sprengingum að óþörfu.

Sprengiefni eyðir maður oftast með því að brenna efnin og eða hella acetone yfir efnin til að gera þau óvirk, en það er bara ekki eins sjónrænt og líklegt til að ná athygli fjölmiðla. Sérsveitin er kölluð út í allskonar verkefni sem almennir lögreglumenn geta unnið sem og verkefni sem Landsbjörg hefur hingað til getað sinnt án sérstakrar aðkomu sýndarveruleikans.

Þessi ýkjuverkefni er svo notuð sem rökstuðningur fyrir auknum heimildum til að skerða frelsi almennings og auknum fjárveitingum vegna tilbúins ótta við það óþekkta.

Allmennt kjark og dugleysi, stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks, tryggir þessum ýkjendum starfsfrið og verðlaun þessa fólk eru völd og fjármagn til að dreifa sjúkum hugarheim.

Ótti, vantraust, vanlíðan og siðrof er uppskeran af þessum skrípaleik sem hefur og er að eitra samfélagið


Ekki í okkar umboð né með samþykki.

Við óskum þess að Íslensk stjórnvöld og embættismenn, hætti nú þegar allri þátttöku í stríðsrekstri og fjármögnun átaka, sem og stuðli að samtali deiluaðila.

 

Þjóðin hefur ekki gefið umboð til vopnakaupa, vopnaflutninga né þátttöku í stríðsátökum eða nýjum varnarbandalögum.

Þjóðin hefur ekki veitt umboð til uppbyggingar á hernaðarmannvirkjum, til vopnakaupa, þjálfunar eða þjónustu við her með kjarnorkuvopn við Íslandi.

 

Þessar heimildir hefur hópur stjórnmálamanna tekið sér, sem og nokkrir opinberir starfsmenn án aðkomu þjóðarinnar, og falið áformin með þögn í aðdraganda kosninga. Það má líta á þetta sem vísvitandi blekkingar gagnvart kjósendum sem og umboðssvik.

 

“óvinurinn” sem er ýmist Kína eða Rússland, er heimatilbúin blekking til að réttlæta nánast rán úr ríkissjóð, því hver gaf stjórnmálamönnum umboð til eflingar vígbúnaðar erlendis fyrir marga miljarða sem og hér á Íslandi?

Rökin og réttlætingin fyrir þessum ákvörðunum eru almennt ímynduð ótta þvæla, líklega byggð á slæmri samvisku eftir stuðning við fjölda innrás NATO ríkjanna, og niðurbrots innviða með vopnavaldi í Írak, Serbíu, Afganistan, Líbýu og svo framvegis.

 

Engar rekjanlegar eða áþreifanlegar sannanir hafa verið færðar fyrir ásökunum, um skaða sem okkur á að hafa verið unninn, að hálfu Kínverja eða Rússa frá upphafi Íslandsbyggðar.

Engar sannanir hafa verið færðar fyrir ásökunum um skemmdarverk né fyrir ásökunum um gagna árásir á innviði Íslands eða fyrir ásökunum um njósnastarfssemi.

Staðhæfingar um njósnir og gagna árásir hafa komið frá hagsmunaaðilum, sem lifa á því að viðhalda ótta og selja varnir gegn hugsanlegum óvin.

Allur þessi ótta áróður er fluttur af fjölmiðlum á framfærslu ríkissjóðs og enginn krefst sannana á þeim fullyrðingum sem birtar eru sem fréttir til almennings.

 

Sérsveit lögreglu er kölluð ítrekað út til að auka tölur sem notaðar eru sem rök fyrir hærri fjárveitingum sem og til að skapa lögreglumönnum auknar tekjur vegna slíkra starfa.

Það er innbyggður fjarhagslegur hvati fyrir lögreglu og landhelgisgæslu til að ýkja hættur og ef nógu hátt er hrópað úlfur, úlfur þá fá þessar stofnanir verðlaun í formi fjárveitinga.

 

Frelsi einstaklinga er skert meira og meira með hverju árinu, á þeim forsendum að verið sé að verja fólk gegn allskonar skelfingu, vegna hugsanlegra og oftast ímyndaðra óvina.

Eftirlit er aukið, heimildir eru veittar til að virða ekki einkalíf né mannréttindi, og vopnakaup sem og birgðasöfnun vopna er heimiluð vegna öryggis, en öryggis hverra?

 

Afl fjölmiðlar er nýtt til dreifingu falsfrétta frá talsmönnum stríðsátaka, sem stöðugt saka alla hina um falsfréttaflutning. Sannleikurinn er alltaf fyrstur til að falla í stríðsátökum, og opið internet hefur gert aðilum erfiðara að ritstýra, þá er gripið í að draga úr trúverðugleika með falsfrétta ásökunum.

 

Öll átök enda með samtali deiluaðila og þannig höfum við leyst okkar ágreining í aldanna rás.

Neitum að nota eða styðja ofbeldi í stað samtala og fordæmum öll slík áform sem ganga gegn okkar grunn gildum, um frið og farsæld fyrir alla.

 

Viljir þú lesandi góður styðja við kröfu um fríð, þá er undirskriftasöfnun á þessari slóð:

https://island.is/undirskriftalistar/2eccaf4a-83f8-4be3-be4c-1f3ff1cbc839?fbclid=IwY2xjawKS-JdleHRuA2FlbQIMQBicmlkETBlSFVxUEdsTnZwQmhNM1pOAR7CzkT-Th-VorSYLQmr_4Lid4uYNBPMGt7iwiZwbo72JGasEM_Nmp-xkVcHyQ_aem_Z_ueuSE-vOH1LxzxZXK4Yw


Ekki með okkar umboð né samþykki.

Mikið hef ég skrifað og bloggað gegn stríðsást Íslenskra embættis og ráðamanna, nú væri gott að taka næsta skref og mótmæla til samræmis við boðskapinn með friðsamlegum hætti.
Það er því kominn undirskriftarlisti hjá Ísland.is til að tjá andstöðu við þetta stríðsblæti örfárra háværra einstaklinga.
Að sverta orðspor landsins sem öruggs friðar reits og orðspor okkar sem ritandi, talandi og hugsandi þjóðar er ekki í boði.

Mikið hef ég skrifað og bloggað gegn stríðsást Íslenskra embættis og ráðamanna, nú væri gott að taka næsta skref og mótmæla til samræmis við boðskapinn með friðsamlegum hætti.
Það er því kominn undirskriftarlisti hjá Ísland.is til að tjá andstöðu við þetta stríðsblæti örfárra háværra einstaklinga.
Að sverta orðspor landsins sem öruggs friðar reits og orðspor okkar sem ritandi, talandi og hugsandi þjóðar er ekki í boði.

Endilega deilið sem víðast um netið svo vilji okkar komi skýrt fram, við krefjumst friðar alstaðar og neitum að berja stríðs trumburnar. Við erum ekki klappstýrur fyrir fjöldamorð.

island.is/undirskriftalisti


Hræsnarinn

Sá sem fjármagnar og styður stríðið þykist svo vera sorgmæddur þegar almenningur upplifir þjáningar og dauða.

Er hægt að lyfta hræsninni á hærri stall, sér enginn samhengið, tengir enginn orsök og afleiðingar.

Ábyrgðin er hjá þeim sem fjármagna stríðið, þeirra er sökin!


mbl.is Þorgerður fordæmir árás Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðslaus tjónvaldur

Vitfirring hernaðarátaka hefur aldrei verið vilji þjóðarinnar né hefur slíkur fáránleiki verið borinn undir þjóðina, nú er fámennur umboðslaus hópur búinn að valda þjóðinni gríðarlegum skaða.

Við höfum leyst okkar deilur innanlands sem og við aðra með samtali, en aldrei ákveðið að best sé að myrða fólk sem ekki er okkur sammála eins og utanríkisráðherra er að standa fyrir.

Að fjármagn vopna og skotfærakaup er þátttaka í fjöldamorðum almennra borgara og fátæklinga, sem neyddir eru í her til að berjast fyrir orðháka sem tala fyrir stríði, en ætla ekki sjálfum sér eða sinna barna, kvalir og dauða á vígvellinum.

Þetta tal um hervæðingu er fáránlegt og gegn vilja þjóðarinnar, þetta fólk hefur logið sig inn á þing og er núna að framkvæma það sem það sagði aldrei í aðdraganda kosninga.

Umboðslaus hjörð sem laug sig til valda til að gera það sem engum var sagt, verður fólk mikið ómerkilegra en þetta?

Stríðsruglið


mbl.is Þrýstingur á Ísland í óformlegum samtölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kenningin um dauða hestin á líka við á Íslandi

Dauði hesturinnThe “Dead Horse Theory” is a satirical metaphor that illustrates how some individuals, institutions, or nations handle obvious, unsolvable problems. Instead of accepting reality, they cling to justifying their actions.

The core idea is simple: if you realize you’re riding a dead horse, the most sensible thing to do is dismount and move on.

However, in practice, the opposite often happens. Instead of abandoning the dead horse, people take actions such as:

• Buying a new saddle for the horse.
• Improving the horse’s diet, despite it being dead.
• Changing the rider instead of addressing the real problem.
• Firing the horse caretaker and hiring someone new, hoping for a different outcome.
• Holding meetings to discuss ways to increase the dead horse’s speed.
• Creating committees or task forces to analyze the dead horse problem from every angle. These groups work for months, compile reports, and ultimately conclude the obvious: the horse is dead.
• Justifying efforts by comparing the horse to other similarly dead horses, concluding that the issue was a lack of training.
• Proposing training programs for the horse, which means increasing the budget.
• Redefining the concept of “dead” to convince themselves the horse still has potential.

The Lesson:

This theory highlights how many people and organizations prefer to deny reality, wasting time, resources, and effort on ineffective solutions instead of acknowledging the problem from the start and making smarter, more effective decisions.


mbl.is Ráðamenn í Hvíta húsinu rifust við Musk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gert í samráði við þjóðina

Enn einu sinni ganga Íslenskir stjórnmálamenn gegn vilja þjóðarinnar og auka algerlega án umboðs frá henni útgjöld til hernaðar.

Við höfum aldrei gefið þessum einræðisherrum og konum heimild til að standa í stríðsrekstri við Rússa, né samþykkt uppbyggingu á Íslenskum her undir feluhjúp Landhelgisgæslu.

Hér er embættismenn að byggja upp Íslenskan her með byggingu mannvirkja, stórfelldra vopnakaupa og stunda blekkingaleik við þessa iðju sem mér vitanlega þeir hafa ekkert umboð til að framkvæma.

Ísland er orðið alræðisríki þar sem lítill hópur embættis og ráðamanna hefur stolið lýðræðinu.


mbl.is Ekki komin hingað til að segja bara eitthvað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þakklæti þeirra sem voru frelsaðir

Hvað með þær 8.7 miljónir rússneskra hermanna sem féllu, til að frelsa Evrópu unda oki Nasista. 

Er Evrópa að hrækja á grafir þeirra í dag?


mbl.is „Ótrúlegt að vera hérna á þessum tíma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóun í rekstri ríkisins

Hef aldrei skilið þessa sóun í rekstri ríkisstofnana og sveitarfélaga, það væri líklega mun hagkvæmara að bjóða út og taka í rekstrarleigu bifreiðarflota ríkis og sveitarfélaga sem og bjóða út allan akstur á vegum ríkis og sveitarfélaga.

Í dag er töluverð reynsla komin á þetta fyrirkomulag og í raun ekkert því til fyrirstöðu að hætta nánast öllum bifreiðakaupum sem og hætta rekstri bifreiðarverkstæða hjá hinu opinbera.

Lagerhald og umsýsla td hjólbarða yrði þá á hendi þess sem annaðist rekstrarleigu og miljarðar þar af leiðandi sparast

Bifreiðarverkstæði, bílaleigur, leigubílastöðvar og leyfishafar hópbifreiða fengju þannig fleiri verkefni og ríkið skatttekjur á móti.

Miljarða fjárfestingar í rekstrarvörum, bifreiðum, húsnæði og fastur launakostnaður hverfur þannig úr opinberum rekstri og atvinnulífið fær aukin tækifæri.


mbl.is Mörg hundruð milljónir í rafmagns lúxusbifreiðar fyrir lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að hafa tölur réttar

Kárahnjúkastífa er 8.4 milj m3.

Desjarár stífla er 2.4 milj m3.

Sauðárstifla er 1.2 milj m3.

Þetta gera nálægt 12.000.000 m3 og þá eru m3 í 60 km af jarðgöngum ekki taldir með.


mbl.is „Kveðjustundirnar eru farnar að verða erfiðari“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband