Mánudagur, 20. nóvember 2023
Kurteisi og virðing
Fróðlegt að aka Hillary Rodham Clinton og kynnast umfangi svona heimsóknar, hún er merkileg og afkastamikil kona sem hefur gert margt gott. Hún kemur fram við alla af virðingu og kurteisi, hún á skilið það sama frá öðrum. Það er vel hægt að hafa skoðanaskipti við fólk án þess að grípa til lágkúru í orðavali, það er ekki það sem fólk segir eða ritar sem skiptir öllu, það er það sem þú gerir.
Er ekki sammála henni í pólitík, en það má hrósa henni fyrir marga hluti.Hér er slóð á hennar æviferil ef fólk vill kynna sér hennar feril: https://en.wikipedia.org/wiki/Bibliography_of_Hillary_Clinton
Þá er kominn hjá mér nýr kafli í lífsins reynslubók.
Þriðjudagur, 14. nóvember 2023
Er þetta vitrænt
Er þetta framkvæmd byggð á fagmennsku og þekkingu eða er verið að búa til atvinnubótavinnu fyrir "rétta" aðila.
Var hönnun og er framkvæmd byggð á verðtilboðum eða var handvalið af vinalista.
Stundum virðist fólk tapa vitrænni getu og framkvæma eitthvað frekar en viðurkenna fyrir sjálfu sér að það er ráðalaust.
Greiðandinn er ég og þú en njótandinn er miljarða gróðafyrirtækin, Bláa lónið og HS Orka sem er í eigu Jarðvarmi slhf. og sjóða í stýringu hjá Ancala Partners LLP. Eignarhlutur hvors um sig er 50%.
Við erum því að eiða 2,5 miljörðum að skattfé okkar í að byggja varnargarða utan um einkarekstur sem rakar inn miljörðum og svo getur enginn í raun staðfest að þessir garðar geri gagn því landið er allt á hreifingu upp og niður sem til allra átta.
![]() |
Frumvarpið samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. nóvember 2023
Við erum vinnuveitandi Alþingis
Miðvikudagur, 8. nóvember 2023
Á kostnað annarra
Það á stríðsæsingarfólk um allan heim sameiginlegt, að það ætlar ekki sjálft að fórna lífi og limum eða þola þjáningarnar. Það ætlast til þess að aðrir gjaldi fyrir þeirra eigin orðhvata heigulshátt.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 3. nóvember 2023
Erum við orðin kjarklaus og siðblind
Nöfn barnanna á Gaza eru skrifuð á útlimina svo hægt sé að auðkenna þau, þá lenda limlestir líkamar barnanna ekki í fjöldagröfum.
Þeir hafa rétt til að verja sig en ekki til að myrða börn og borgara.