Útgönguleið

Fólkið í lífi mannsEf við viljum horfa á heildarmyndina og finna sanngjarna leið út úr þessu með t.d því að fjölga þátttakendum á vinnumarkaði þá ætti stytting vinnuvikunnar að vera ofarlega á blaði.

Þá ætti að gefa fólki kost á að hætta á vinnumarkaði fyrr og beina þá greiðslum úr atvinnuleysissjóði inn í eftirlaunakerfið svo rými skapist fyrir yngra fólk á vinnumarkaði.

Þetta myndi ekki bara bæta lífsgæði heldur einnig draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins því mynna yrði um eldri einstaklinga með til dæmis skaddað stoðkerfi vegna of mikils álags.

Förum nú að setja lífsgæði og gleði ofar prentuðum pappír sem kallast peningaseðill og mun ekki fylgja okkur síðasta metrinn

 

mbl.is Atvinnuleysi eykst og atvinnuþátttaka minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að setja fólk á hausinn aftur

Sóttvarnalækni setur fram tillögur sem miðast við að vernda líf sem flestra og við erum sátt við það.

Ráðherra staðfestir oftast þessar tillögur með lagasetningu og eða reglugerð, stundum er aðgerðir svo harkalegar að rekstur stöðvast hjá því opinbera, fyrirtækjum og einyrkjum.

Til að koma á móts við þetta er verið að greiða úr ríkissjóð styrki og bætur til að rekstur fari ekki í gjaldþrot.

Þó að hjól atvinnulífsins hafi verið stöðvuð með tilskipunum frá ríkisstjórn og engar tekjur myndist þá hætta hjól innheimtuaðila ekki að snúast og fjöldi einyrkja of.l sem bannað hefur verið að afla tekna er neyddur til að éta upp allar eignir og jafnvel sækja um gjaldþrot.

Hvernig væri nú að setja lög sem skilda lánveitendur og aðra til að framlengja greiðslukröfum um jafn marga mánuði og vinna er ekki framkvæmanleg sökum krafna um sóttvarnir þannig að greiðslur færist aftur fyrir á lánum og þannig verði hægt að forða fjöldagjaldþrotum eins og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar lét framkvæma í fjármálkreppunni sem kostaði tug þúsunda Íslendinga heimili sýn og að mestu vegna krafna frá því opinbera sem var Húsnæðismálastjórn

Er enginn hjá því opinbera búinn að læra nokkurn skapaðan hlut 


Draumastjórn

Stjórn sem sem setur jöfnuð, herlaust öryggi og velferð almennings í forgang.

Stjórn sem felur þjóðinni að semja nýja stjórnarskrá.

Stjórn sem tryggir eignarhald þjóðarinnar á öllum náttúruauðlindum sem og arðinn.

Stjórn sem lætur fólk í friði á meðan það heldur friðinn.

Stjórn sem stendur með þjóðinni í stað þess að kyngja öllu sem kemur að utan.


Hinn bitri drullupollur

Stjórnmál á Íslandi eru voðalegur drullupollur þar sem bullukollar ausa frá sér rakalausum þvætting og fullyrða ásakanir sem enga skoðun standast, enda er þessu fólki nánast ógjörningur að vísa á rekjanlegar og eða staðfestar heimildir. Alveg magnað að einhver vilji almennt fórna eigin mannorði og fjölskyldu með þátttöku í stjórnmálastarfi því þessi nettröll eru sem sýrubað á allt og alla. Mikið svakalega er þetta fólk eitrað í samskiptum og lýður þessu fólki illa í eigin lífi. Hikar ekki við að saka bæði Alþingismenn sem Sveitarstjórnafólk um mútuþægni og almenna glæpastarfssemi án annar heimilda en eigin hugsana

segir-eythor-arnalds-hafa-thegid-mutur-fra-samherja/


mbl.is Fara fram á aukafund vegna ummæla Dóru Bjartar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara eins og hér áður fyrr

Þetta er ekkert nýtt hér á Íslandi, við höfum hagað okkur svona sjálf í áratugi.
Heyri ekki betur en duglegir farandverkamenn séu ósáttir, við erum með þúsundir af ungum starfsmönnum hér á landi sem eru sem gufukatlar og haga sér alveg á sama hátt og Íslendingar sem hafa drukkið of mikið áfengi. Ég sé að nokkuð margir aðilar eru farnir að nota þetta myndband til að réttlæta eigin öfgahyggju gegn trúarbrögðum sem þjóðerni og ekki við öðru að búast frá þeim hóp.
Hverjum hjálpar það?

mbl.is Gróft ofbeldi í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump fái friðarverðlaun Nóbels

Donald Trump er fyrsti forseti Bandaríkjana í 40 ár sem ekki er búin að hefja stríð við erlent ríki.

Honum er ekki allsvarnað, spurning hvort hann sé ekki verðugri Nóbel friðarverðlaunum en forverinn.

Sjá slóð: Friðarinns maður


Sameining er miljarðatuga ávinningur

Það sem stendur í vegi fyrir sameiningu á höfuðborgarsvæðinu eru ekki íbúarnir, það eru frekar þessir 23 borgarfulltrúar í Reykjavík, 7 bæjarfulltrúar á Seltjarnarnesi, 9 bæjarfulltrúar í Mosfellsbæ, 11 bæjarfulltrúar í Garðabæ, 11 bæjarfulltrúar í Hafnarfirði og 11 bæjarfulltrúar í Kópavogi auk margfaldaðs stjórnkerfis með 6 á flest öllum sviðum.
Það eru 72 kjörnir fulltrúar á þessu litla svæði og til dæmis kostar skrifstofa miðlægar stjórnsýslu hjá Reykjavíkurborg 4,6 milljarða samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.
Getur fólk gert sér í hugalund hvað margir tugir miljarðar eru að flæða úr vösum okkar skattborgarana í þessa þvælu.

Landstærðir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eru:

Reykjavíkborg 277,1 km² að flatarmáli og mannfjöldinn 132.410 (2020).

Kópavogsbær er 83,7 km² og mannfjöldinn 38.1200 (2020).

Hafnarfjarðarbær er 143,3 km² og mannfjöldinn er 29.870 (2020).

Garðabær er 76,7 km² og mannfjöldinn er 17.330 (2020).

Mosfellsbær er 193,7 km² og mannfjöldinn um 12.230 (2020).

Seltjarnarnesbær er 2,3 km² og mannfjöldinn 4.700 (2020).

Kjósarhreppur er 287,7 km² og mannfjöldinn aðeins 250 (2020).

Samtals nær höfuðborgarsvæðið því yfir 1000 km² eða nákvæmlega 1,062 km² sem gerir um 1% af heildarstærð Íslands. 

Sameining höfuðborgar


Hækkun eftirlauna aldurs styttir lífslíkur

Það er mikið hagsmunamál fyrir Lífeyrissjóðina að fólk vinni sem lengst til að lífslíkurnar minnki og útgreiðslutíminn sé sem stystur þannig að sem mest verði eftir í holum sjóðum til að mæta tapinu af útgreiðslum (lánum) til "fjárfesta".

Við virðumst vera álitin kostnaður og afætur en ekki réttmætir eigendur lögskipaðs lífeyris sem ríkissjóður er að nota til að fjármagna greiðslur til okkar, sem margir segja að sé í raun eignaupptaka 

Og nú vilja þessir aðilar hækka eftirlaunaaldurinn og klára þannig lífskraftinn sem eftir er, erum við manneskjur eða neysluvörur í hagkerfi græðgivæðingarinnar

Sjá: https://beyondblindfold.com/retire-at-55-and-live-to-80-work-till-youre-65-and-die-at-67-startling-new-data-shows-how-work-pounds-older-bodies/?fbclid=IwAR0pVieHb7LVzIGo2-uoIgmdkvmGm6x0WP6dcFp9x4iE4u9LSYKC6S_y3_8

Heimildir:

  1. https://www.acc.com/aboutacc/newsroom/pressreleases/upload/SRRS.pdf
  2. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0165176509000196
  3. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4029767/
  4. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/26079117

Minni lífslíkur


Vond hugmynd

Sú fáránlega hugmynd að fá ferðamenn til að öskra út í Íslenskri náttúru og fæla þannig burt allt sem lifir hlýtur að hafa skriðið út úr rassgatinu á einhverjum.
Frekar vill ég náttúruhljóð og kyrrð en gargandi vanvita, þessi ferðaþjónusta er að verða mesti skaðvaldur Íslenskrar náttúru með umgengni sinni og misnotkun gæða.


Þegar menn þræta fyrir

Þessi uppryfjun er sorgleg: 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband