Rafræn öskur og fullyrðingar

corona_0Það virðist vera til staðar töluvert af fólki í samfélaginu sem stekkur á samsæriskenningar um að Kínverjar hafi framleitt veiruna sem veldur COVID 19, er ekki rétt að skoða rekjanlegar heimildir byggðar á rannsóknum fyrst.
Og þið hin svarið þessu fólki og fræðið svo þessar draugasögur kæfi ekki skinsemina með rafrænum öskrum og fullyrðingum

Hvaðan kemur COVID 19

Greining á COVID 19


Að svíkja sjálft lífið út úr fólki

Menntakerfið er hannað til að framleiða vinnuþræla fyrir vinnumarkað og markaðsvæðing kerfisins er að skila inn á vinnumarkaðinn þúsundum af ofurskuldsettum einstaklingum með menntun sem lítil þörf er fyrir og er að verða úrelt sökum 4 iðnbyltingarinnar.

Lífeyriskerfið er svikamilla til að ná aftur umtalsverðum hluta launa vinnandi fólks í sjóði sem atvinnurekendur stjórna og nota til að auðgast á en eftirlaunaþegar sitja eftir með skerðingar sem verða vegna fjárfestingataps sjóðanna, taps sem oftast minnir á skipulagða glæpastarfssemi því sjóðirnir fjárfesta í svartholu fyrirtækjum sem tæmd eru af eigin fé samhliða inngreiðslum úr lífeyrissjóðunum.

Atvinnurekendur með hjálp löggjafavaldsins halda fólki á vinnumarkaði uns launþegar eru búnir að slíta eigin líkama svo út að eftir er ekkert nema líf verkja og heilsuleysis því búið er að svíkja lífskraftinn út úr fólki fyrir lítið fé.

Afrakstrinum af lögbundnum lífeyrissjóðnum okkar hefur að mestu verið stolið og ríkisbáknið hirðir að mestu það sem eftir er með skerðingarreglum, laun erfiðisins sem bíða heilsulausra er fátækt og lífsleifar sem verkjaður bótaþegi frekar en sem eftirlaunaþegi sem nýtur sparnaðar.

Hin kapítalíska uppbygging samfélagsins er sannkallaður viðbjóður gegnsýrður af mannvonsku og græðgi, fólk er ýmist metið sem kostnaður eða auðlind og enginn kærleikur eða væntumþykja er látin þrífast enda flokkað sem útgjöld.

Hversu oft heyrir maður ekki sagt um einhvern að hann eigi ekkert, eins og eignasafnið sé það sem spegli manngildið og verðleika einstaklingsins. Sá sem safni auð sé stórmenni en sá sem gefi frá sér auð og kærleik eða styðji aðrar manneskjur sé kjáni og lítilmenni.

Þetta er bergmál samfélags sem búið er að græðgivæða niður að rót


mbl.is 4 daga vinnuvika Microsoft jók framleiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunverulegar aðgerðir gegn fátækt

Það er oft talað um fátækt á Íslandi en ekkert gert, hvað með að opna svona samfélagseldhús um allt land og tryggja þannig að allir hafi aðgengi að hollum og góðum mat.
Gera samfélagssáttmála um að hungur verði aldrei látið viðgangast, ég er alveg sáttur við að nota hluta af mínum sköttum í svona verkefni.

https://www.ruv.is/frett/seydfirdingar-borda-saman-i-hadeginu?fbclid=IwAR0QvWHF4CPBorG9fh4VE4nkhk7XZjXc-F5sYjme186BfRZ_giXMk9d9AbU

"If not us, who? If not now, when?"
"Ask not what your country can do for you, but what you can do for your country."
- John F. Kennedy


Byrjum á réttum enda

Hvernig væri nú að byrja á réttum enda og samræma flokkun á Íslandi, þannig að það verði eitt samræmt flokkunarkerfi notað af öllum sveitarfélögum.

Svo skulum við taka þetta á næsta stig með flokkun og raunverulegri endurvinnslu í stað útflutnings á vandanum.


mbl.is Tímabært að skylda flokkunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétttrúnaðarskýrsla frá kaldastríðstímanum

Mikið afskaplega var dapurt að renna í gegn um þessa Rétttrúnaðarskýrslu sem var sem minningargrein um pólitískar skoðanir hægri öfgamanna frá kaldastríðstímanum (sjá til dæmis bls 109 til og með bls 111).

Er ekki komin tími á að fá fagfólk til að gera svona úttektir í stað gamalla staðnaðra lögmanna sem titlast oft sem "sérfræðingar í varnarmálum" þó hvergi finnist skráð sú sérfræðimenntun sem menn þurfa af hafa til að bera slíka titla.

Áratuga seta í opinberum nefndum og ráðum gerir fólk ekki að sérfræðingum, frekar svona að  þaulsetnum flokksmönnum á kostnað skattgreiðenda.

Við eigum mikið úrval af fagfólki með sérfræðimenntun sem hefur þann þroska og þá þekkingu sem þarf til að skrifa hlutlaus úttekt án þess að fara í pólitískt trúboð eins og launaðir pennar fyrir erlenda hagsmunaaðila.

Mæli með því að þessi skýrsla fari í tætarann og fagfólk verði fengið í verkefnið.

Draumur öfgamanna


mbl.is Kappsmál að styrkja stoðirnar tvær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að stöðva neikvæða arfleifð

10-things-toxic-parents-do-and-how-they-damage-their-children

Við sem höfum alið upp börn erum líklega öll sek um að hafa gert eitthvað af þessum og þurfum að vinna úr því.
Við erum sjálf speglar þeirra sem komu að okkar uppeldi eins og þeir einstaklingar spegluðu þá sem á undan fóru.
Okkar ábyrgð felst í því að greina það sem var rangt gert og leiðrétta það, sem og ýta undir það sem er rétt og gott fyrir börnin okkar að temja sér


Kjarni samfélagsins

ljósanóttÞær eru ekki áberandi á forsíðum samfélagsmiðla og sjaldan í dagblöðum eða öðrum fjölmiðlum, samt eru þær driffjaðrir samfélagsins sem í þögn vinna afrek sem of sjaldan eru lofuð.

Þetta eru mæður, ömmur og frænkur sem mynda saman félagskap kvenfélaganna um allt Ísland, konurnar sem afla fjár til verkefna sem bæta líf okkar allra í frítíma sýnum að lokinni vinnu, uppeldi barna og heimilisrekstri sem gerir þær flesta að góðum framkvæmdastjórum.

Þeirra fjáröflun hefur í gegn um árin oftast byggst á veitingasölu sem löggjafinn hefur oft ráðist gegn með fylkingu hagsmunahópa sem vilja frekar ná þessum tekjum í eigin vasa frekar en leyfa kvenfélögum að afla og gefa til styrktar þeim sem þurfa.

Græðgin og ofstjórnin hefur hatrammt barið á samhjálp og náungakærleik í gegn um tíðina en þessar samfélagshetjur okkar gefast sem betur fer ekki upp fyrir þessum öflum

Mér finnst löngu tímabært að gera Dag kvenfélagskonunnar sem er 1. febrúar ár hvert að þakkagjörðahátíð

 


Þegar á vináttuna reyndi

Ágætt að rifja aðeins upp þessa miklu vináttu Bandaríkjamanna sem á reyndi eitt sinn.
 
Hér eru orð fyrrum utanríkisráðherra okkar 2009–2013.
 
"Mestu skiptir þó að Kínverjar réttu okkur hjálparhönd í bankahruninu meðan Bandaríkjamenn gerðu ekkert. Þeir féllust á að gera við okkur gjaldmiðlaskiptasamninga á nákvæmlega sama tíma og Bandaríkjamenn höfnuðu að rétta okkur svo mikið sem litla fingurinn. Þvert á móti – einsog datt út úr ræfli mínum í umdeildu sjónvarpsviðtali - Bandaríkin sýndu okkur fingurinn!"
Það má heldur ekki gleymast að Rússar buðust til að hjálpa okkur líka.
 
Hér er forn ráðgjöf sem hann Quintus Ennius er borin fyrir en hann var uppi á milli 169 og 239 fyrir Krist: A friend in need is a friend indeed.
Sú bitra reynsla er því forn og hefur margsannað sig að vinur í raun er betri en sá falski vinur sem hleypur frá um leið og eitthvað fer úrskeiðis.
Það er sjálfsögð kurteisi að taka vel á móti gestum en heimska að trúa því að allir séu þeir vinir í raun
 

mbl.is „Sárvantar úttekt á samskiptum Íslands og Kína“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameining höfuðborgar

Sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er mikið hagsmunamál okkar íbúana en ekkert endilega hvetjandi fyrir þá sem njóta góðra laun í núverandi fyrirkomulagi og flokkarnir njóta líka góðs af núverandi sóun fjármuna okkar skattgreiðenda.

Krafan um sparnað og hagræðingu verður að koma frá okkur sjálfum, ég læt hér fylgja með sem viðhengi smá yfirlit yfir það hvað margir miljarðar renna úr okkar vösum í þessa óseðjandi ófreskjur sem stjórnkerfin eru orðin og laun nokkurra starfsmanna.

Upplýsingarnar eru fengnar úr opinberum gögnum

Fyrir mér er það algjör bilun að vera ekki fyrir löngu búin að sameina sveitarfélöginn á höfuðborgarsvæðinu, hér eru nokkrar tölfræðilegar staðreyndir um það hvað margir tugir miljarða af okkar skattfé eru að brenna upp á hverju ári

Laun_borgarfulltrua_uppfaerd/

Frá ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. september 2019 13:32:

"Grunnlaun borgarfulltrúa: kr. 763.833.
Grunnlaun 1. varaborgarfulltrúa kr. 534.683.
Borgarfulltrúi fær greiddan starfskostnað kr. 55.164, til að mæta öllum persónulegum kostnaði vegna starfsins.

Borgarfulltrúi á rétt á 25% álagi á laun ef hann gegnir formennsku í fagráði/borgarstjórnarflokki eða ef hann situr í þremur eða fleiri fastanefndum.
Borgarfulltrúi sem situr í borgarráði á rétt á 25% álagi á laun, kjörinn varamaður á rétt á 6% álagi og formaður borgarráðs á rétt á 40% álagi.
Forseti borgarstjórnar á rétt á 25% álagi á laun.

Laun borgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 809.663.
Laun borgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur nefndum) kr. 954.791.
Laun borgarfulltrúa með 2*25% álagi (s.s. vegna setu í borgarráði og öðrum þremur nefndum) kr. 1.145.749.

Laun 1. varaborgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 580.513.
Laun 1. varaborgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur nefndum) kr. 725.641."


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Fjarlægjum græðgihvatann

Ég legg til að við fjarlægjum græðgihvata auðsafnaranna og það sem flestum illdeilum hefur valdið innan fjölskyldna í gegn um aldirnar.

Auðurinn er hvort sem er tekin frá samfélaginu með því að nýta náttúruauðlindir í sameign þjóðarinnar og eða með því að nýta vinnuaflið sem í þjóðinni býr.

Færum erfðaréttin til þjóðarinnar þannig að ríkissjóður verði einkaerfingi allra ríkisborgara á Íslandi enda hvílir framfærsluskilda allra ríkisborgara á ríkissjóði.

Arfur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband