Mannauðs eða útfarastjórnun

Fjölmörg fyrirtæki eru með mannauðsstjóra í starfi sem og eða kaupa slíka þjónustu hjá fólki, menntuðu á sviði mannauðs.

Það vekur alltaf hjá meiri furðu hvað þetta starfsheiti virðist oft vera öfugmæli, þetta sérmenntaða fólk virkar flest á mig sem útfarastjórar mannauðs fyrirtækja, ákvarðanir virðast oft byggjast á kenningum, tilfinningum og aldursfordómum frekar en rökhugsun.

Fjölmargir starfsmenn eru látnir fara frá fyrirtækjum með þeim röksemdum að ákveðnum aldri sé náð, áratuga reynsla, menntun eða uppsöfnuð þekking, upp á tugi miljóna skiptir allt í einu engu máli fyrir fyrirtækin, heilsuhreysti og tryggð er einskis metin lengur.

Þetta einkennir frekar stærri fyrirtækin þar sem stjórnendur fyrirtækjanna eru ekki þeir sem byggðu upp reksturinn, eru flestir menntaðir stjórnendur sem vita ekki hvað sigg er.

Með alla þessa menntuðu verkfræðinga og viðskiptafræðinga í störfum hjá atvinnulífinu, gæti maður ályktað að ákvarðanir yrðu vitrænni og fyrirtækin færu að skoða betur í hverju verðmæti liggja, byggingar, búnaður og tæki eru dautt dót sem má kaupa, selja, leigja og afskrifa eftir hentugleika en hinn raunverulegi auður í mannshuganum er einstök auðlind og enginn þeirra eins.

Margir stjórnendur eru óhæfir í starfi og komast upp með að loka á framlag einstakra starfsmanna sem eru kannski ekki skemmtikraftar, en hafa rök og nýsköpunarhugsun sem og frumkvæði til að bera, fyrir sumum eru þessir einstaklingar ógnun við þeirra starfsöryggi og sæta því einelti og útilokunar.

Það segir sig sjálft að það að slökkva á 4 af 10 tölvum fyrirtækis, er ekkert annað en skemmdarverk á innviðum og rýrir verðmætasköpun verulega, samt eru óhæfir stjórnendur mjög víða látnir komast upp með svona vinnubrögð.

Hluthafar og stjórnendur fyrirtækja og stofnana ættu að gera skýrar kröfur um rök að baki breytinga í starfsmannahaldi, láta kortleggja þekkinguna, reynsluna og láta virkja alla þá huga sem hjá þeim starfa til að nýta raunverulegan mannauð sem og gefa starfsfólki kost á að koma sínum skoðunum og ábendingum á framfæri.

Consult not your fears but your hopes and your dreams. Think not about your frustrations, but about your unfulfilled potential. Concern yourself not with what you tried and failed in, but with what is still possible for you to do.

Jón XXIII páfi


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband