Meira grín

 

Sverrir fékk páfagauk í afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var með afbrigðum skapvondur og orðljótur. Sverrir gerði allt sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum ósið, hann notaði sjálfur eintóm kurteisisorð, spilaði hugljúfar ballöður fyrir hann og reyndi með því að sýna honum gott fordæmi. Ekkert gekk upp. Hann prófaði að skamma fuglinn sem svaraði honum fullum hálsi. Hann hristi búrið en gaukurinn varð bara enn skapverri og dónalegri við það. Sverrir vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð og í örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í frystikistuna. Um stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði og bölvaði -- en skyndilega datt allt í dunalogn og ekki eitt einasta hljóð heyrðist í langan tíma. Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt fuglinn og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins vegar hinn rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris og sagði: "Að undanförnu hefur hegðun mín og orðbragð ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til að móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og breyta þessari hegðun minni.
Mér þykir verulega leitt hvernig ég hef látið og mig langar til að biðja þig innilega fyrirgefningar." Sverrir varð orðlaus af undrun og var um það bil að fara að stama upp spurningu um hvað hefði valdið breytingunni þegar páfagaukurinn hélt áfram: "Bara svona fyrir forvitni sakir, hvað gerði kjúklingurinn eiginlega?"

 

Hjúkkan gengur inn í eitt herbergið á deildinni og sér þar Gunna, einn sjúklinginn, þykjast vera að keyra bíl.
Hún spyr, "Gunni, hvað ertu að gera?
Gunni svarar, "ég er að keyra til Akureyrar!" Hjúkkan óskar honum góðrar ferðar og kveður.
Næsta dag gengur hjúkkan inn í herbergið hjá Gunna sem er í þann mund að hætta  að keyra sinn ímyndaða bíl. Hjúkkan spyr, "Hvað ertu að gera núna?"
Gunni svarar, "ég er kominn á Akureyri og var að leggja bílnum."
"Frábært", svarar hjúkkan. Síðan yfirgefur hún  herbergið hjá Gunna og gengur yfir ganginn inn í herbergið hjá Daníel næsta sjúklingi, og kemur að honum að runka sér á fullu.
Hissa og hneyksluð spyr hún, "Daníel hvað ertu EIGINLEGA AÐ GERA?!"
Daníel svarar, "ég er að ríða konunni hans Gunna, á meðan hann er á Akureyri!"

 

Á silfurbrúðkaupinu vaknaði eiginmaðurinn grátandi, eiginkonan vildi vita hvað væri að.
Hann svaraði: "Manstu þegar pabbi þinn kom að okkur uppi á hlöðu loftinu og hótaði mér að ef að ég myndi ekki giftast þér þá myndi hann kæra mig og sjá til þess að ég myndi fá 25 ára dóm? Hugsaðu þér að í dag væri ég orðin frjáls maður."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Þú ert ótrúlegur! Hvar grefur þú upp þessa brandara?

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 2.3.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband