Þriðjudagur, 18. mars 2008
Á kostnað almennings
Margir þessir einstaklingar er hinir hæfustu, en það á að auglýsa öll störf sem ekki er kosið í á Alþingi, og þeim á að fækka til muna sem kosið er til.
Hér er smávægileg samtekt eftir stutta athugun, það er eflaust mörgu starfinu og manninum sleppt, en það er frekar blaðamanna að taka saman svona lista, til að sýna sjálftökuna úr sjóðum almennings.
Og ekki mun fækka við jötuna eftir samþykkt Alþingis á aðstoðarmönnum Þingmanna, þannig að þingmenn munu geta ráðið sér atkvæðasmala í Kjördæmin, og haldið þeim þingmönnum sem er hafnað í kosningum, áfram á launaskrá.
Það er því verið að gelda Lýðræðið og gjaldfella kosningarréttinn.
Hér er stuttur listi og bara sem sýnishorn.
Framsóknarflokkur
Jón Sigurðsson. Nefnd Utanríkisráðuneytis um mótun öryggismálastefnu
Jón Kristjánsson. Formaður Stjórnarskrárnefndar
Sæunn Stefánsdóttir. Stjórn Flugstoða Ohf
Halldór Ásgrímsson. framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Frjálslyndi flokkurinn
Magnús Þór Hafsteinsson. Stjórn Grænlandssjóðs
Margrét K. Sverrisdóttir. Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs
Sjálfstæðisflokkurinn.
Sólveig Pétursdóttir. Formaður nefndar um afmæli Jóns Sigurðssonar
Davíð Oddson. Seðlabankastjóri
Friðrik Sófusson. Forstjóri Landsvirkjunar
Drífa Hjartardóttir. Stjórn Byggðarstofnunar
Halldór Blöndal. Formaður Bankaráðs Seðlabankans
Guðmundur Hallvarðsson. Formaður Siglingaráðs
Sigríður A Þórðardóttir. Sendiherra
Tómas I Olrich. Sendiherra
Hjálmar Jónsson. Stjórn Þróunarsamvinnustofnun Íslands
Samfylkingin
Anna K Gunnarsdóttir. Stjórn Byggðastofnunar, Nefnd um eflingu Háskóla, Nefnd Utanríkisráðuneytis um Landbúnaðarmál
Margrét Frímannsdóttir. Forstöðumaður Fangelsisins á Litla Hrauni, Stjórn Ríkisútvarpsins Ohf, Nefnd um málefni fatlaðra
Jón Gunnarsson. Stjórnarformaður Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Guðrún Ögmundsdóttir. Verkefnastjóri í Menntamálaráðuneyti, Formaður Flóttamannanefndar
Rannveig Guðmundsdóttir. Stjórn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, Stjórn Norræna Menningarsjóðsins, Dómnefnd um Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
Mörður Árnason. Formaður Orkuráðs
Eiður Guðnason. Sendiherra
Svavar Gestson. Sendiherra
Guðmundur Á Stefánsson. Sendiherra
Sighvatur Björgvinsson. Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnun Íslands
Vinstri Grænir
Svanhildur Kaaber.Stjórn Ríkisútvarpsins Ohf
Vilji fólk skoða þetta nánar er bent á vef Alþingis, eða bara Google.com
En kostnaður þjóðarinnar skiptir hundruðum miljóna við Afætukerfi Stjórnmálaflokkana
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.