Litföróttur í pólitík

Ég er orðin litföróttur í pólitík, á mig sjálfur og elska alla flokka en vill bara skyndikynni í stað stöðugs sambands með öllu sem því fylgir.

 
Gerðist Sósíalisti fyrir nokkru en gekk ú þeim flokk nokkrum mínútum áður en ég gekk í Sjálfstæðisflokk i gær til að hafa áhrif í prófkjöri, vera mín í flokknum var stutt.
 
Gekk í Sjálfstæðisflokkinn kl ca 15:30 þann 5.6 og sagði mig úr honum kl 02:00 6.6.2021 er ljós var að Guðlaugur Þór væri forystumaðurinn til að ég næði svefnfriði frá samviskunni sem stöðugt bankaði á.
 
Flokkar á Íslandi eru fyrir mér svona svipað og ruslfæði, bragðgott og freistandi en óhollt. Mér finnst því best að velja þá bita sem ég stenst ekki, háma þá í mig og farga svo rest.
 
Ég verð að segja að mér leið ekki vel í Valhöll í gær því þetta var nánast aga og stjórnlaus hjörð, nánast enginn með grímu og enginn nálægðarregla virt. Varla hægt að finna betri stað fyrir veiru dreifingu og þetta minnti mig mun meira á trúarsamkomu eldri borgara en prófkjör.
 
Er sáttur við ungu konurnar og þeirra árangur en leiður yfir því að missa Brynjar af þingi.

Menntakerfi fyrir framtíðina

Framtíð okkar byggist að mestu á því hvernig menntakerfi við byggjum upp og fyrir hverja.

Í dag virðist kerfið að mestu miðast við þarfir kennara og stjórnenda í kerfinu, stórar söfnunarbyggingar sem minna á réttir bænda með dilkum til að draga nemendur í.

Kennslan er að mestu fólgin í að þjálfa huga nemanda svo þeir standist próf í minnisgetu og fái gegn góðu minni, vottun um að hafa munað tiltekna hluti í völdum bókum fram að prófi.

Þetta er hinn hefðbundna menntun sem dugði í fortíðinni og kennsluiðnaðurinn vill viðhalda.

Tilgangur menntunar virðist vera sá að þjálfa starfsmenn fyrir atvinnulífið og hið opinbera, einnig er kennsluiðnaðurinn orðin það þurftafrekur að verið er að selja unga fólkinu menntun sem lítil sem engin þörf verður fyrir til að halda iðnaðinum tekjulega uppi.

Afraksturinn er töluvert magn af yfirskuldsettu ungu fólki sem sekkur svo enn dýpra í skuldafenið þegar fjárfest er í húsnæði, bifreið o.f.l sem talið er nauðsyn til að nálgast hamingjuna.

 

Kennsla í mannlegum samskiptum og hugarflugi, þátttaka í skapandi hópstarfi og samvinna þvert á fög sem menningarheima, efling tilfinningagreindar. Þetta eru kannski gagnlegri kennslugreinar en hefðbundin fög sem vélstýringar eru að yfirtaka og gera mun betur en við.

Við erum að berjast við allskonar vandamál í okkur sjálfum frá unga aldri og ættum kannski að fara að snúa okkur að kjarnanum í manneskjunni, sjálfinu.

Fólk er að flýja sjálft sig frá unga aldri og fellur margt í gryfju fíknar að einhverju tagi þar sem mannslíkaminn vinnur oft gegn okkur og bætir við hugarvandann með efnabreytingum sem gera fólk enn háðara flóttaefninu hvort sem það er áfengi eða önnur fíkniefni.

 

Við ættum að fara að einbeita okkur að uppbyggingu komandi kynslóða með því að hjálpa þeim og styðja í gegn um lífið frá unga aldri í stað þess að standa í innrætingu út frá rétttrúnaði.

Banna þarf alla trúarbragðainnrætingu fram yfir a.m.k 16 ára aldur til að verja viðkvæma huga fyrir misnotkun, tryggja þarf að börnum sé kennt að starfa saman, virða hvort annað og hjálpast að, banna alla mismunun og aðgreiningu út frá kyni eða öðrum þáttum sem vinna gegn samkennd og samvinnu.

 

Við þurfum að styðja og styrkja börnin svo upp vaxi heilbrigð kynslóð sem fær góðan stuðning til að takast á við komandi tíma með opnum huga og heilbrigðri samkennd við hvort annað. Mesta hættan liggur í fortíðarvandanum og mesti skaðvaldurinn er fölsk þekking fortíðar sem haldið er að ungum börnum og setur í hlekki hugarfarsins sem loka fyrir frjálsa hugsun.

 

Vængstýfðir fuglar fljúga aldrei og ef þeir vængstífa ungana sína ár eftir ár mun aldrei vaxa úr grasi fleyg kynslóð.

lundinn


Að sóa skattfé í fíflalæti og opna fjölmiðlasirkus

Hef þá skoðun að best nýting fjármuna og skynsamlegasta sé, að stýra hraunrennslinu niður að sjó. Rjúfa veginn og gera hliðargarða úr jarðveg eða með kælingu ef þarf til að leiðin sé sem greiðfærust fyrir hraunið. Enginn þörf fyrir atvinnubótavinnu hjá verktökum sem eru í náðinni og engin þörf er heldur fyrir verkfræðinga sem ekki kunna að nota hermilíkön við þessa vinnu. Við höfum nokkra vana menn og konur sem hafa byggt magnaðar jarðvegsstíflur og eru menntaðir jarðvegsverkfræðingar, við höfum reynslu af kælingu og fólkið sem gerði slíkt í Vestmannaeyjum er margt enn til staðar. það þarf ekki að opna sirkus og vera með flugeldasýningar á kostnað almennings, reynslan og þekkingin er til staðar og eflaust bara í bið.


mbl.is Gervihnattamynd sýnir hraunstrauminn í Nátthaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkraflutningar

Erfitt er að finna greiningu á sjúkraflutningum inn á höfuðborgarsvæðið eða innan svæðis en vegna hagræðingar í heilbrigðiskerfi hefur fjöldi flutninga aukist sem og vegalengdir er farnar eru með sjúklinga í sjúkrabifreiðum.

Samkvæmt rannsóknum eru skýr tengsl á milli flutningsvegalengdar í sjúkrabifreið og lífslíkna og skýrt að það verður meira um andlát við aukna vegalengd og aukin tíma.

Nú er verið að byggja upp nýjan Landspítala fyrir tugi miljarða við Hringbraut og Vatnsmýrarveg, þangað stefna þá allir neyðarflutningar með sjúklinga og vert að horfa á hvað margir flutninga koma frá Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi.

Það þyrfti að tryggja með lögum að einstaka sveitarfélög hafi ekki heimildir til að auka umferðarþunga á aðal flutningsleiðum fyrir neyðarakstur né gera annað það sem eykur viðbragðs og flutningstíma sjúkrabifreiða eða ógnar öryggi flutninga án þess að annar valkostur og betri fyrir þessa flutninga verði tryggður.

Tryggar flutningaleiðir eru margfalt mun meira hagsmunamál fyrir þessa flutninga en staðsetning í nánd við flugvöll er horft er á fjölda neyðarflutninga og hvaðan þeir koma.

Það hefur ítrekað gerst að andlát hafa átt sér stað í sjúkrabifreiðum sem koma frá Suðurnesjum vegna þess að á því svæði er ekki full mönnuð bráðamóttaka þrátt fyrir að íbúafjöldi sé kominn yfir 28.195

Á Vesturlandi búa 16.710 og á Suðurlandi búa 31.388, allur þessu hópur 76.293 landsmanna búa við þá staðreynd að eina fullbúna bráðamóttakan er staðsett í Reykjavík þar sem við sjúkraflutningsmönnum taka umferðartafir og aðrar hindranir á flutningum sem kosta mannslíf og skýrt er að stefnt er á að tefja þessa flutninga enn meira með ákvörðunum sem engar afleiðingar hafa fyrir þá sem þær taka þó þær kosti mannslíf.

Íbúafjöldin á landinu öllu er á fyrsta ársfjórðungi 2021. 368.792 þar af á höfuðborgarsvæðinu 237.470 og innan flutningsvegalengdar frá LSH 76.293 íbúar.

Svæði með 313.763 íbúa eiga því nánast allt sitt undir því að trygg flutningsleið sé fyrir sjúkrabifreiðar að bráðamóttöku við Hringbraut sem og Fossvogi á meðan hún er í notkun.

Bráðamóttökur á Selfossi, Akranesi eða Keflavík eru ekki mannaðar til neyðaraðgerða með möguleika á uppskurði vegna til dæmis fylgjulos allan sólahringinn, þær eru frekar flokkunarstöðvar fyrir framhaldsflutninga.

Boðanir SHS vegna sjúkraflutninga námu 32.979 árið 2020 sem er aukning um 793 boðanir á milli ára og þar af voru 8.221 forgangsútköll.

Fjöldi sjúkraflutninga á svæðum HVE, HSS og HSU er erfitt að finna enda ekki haldið á forsíðum.

Ekki má horfa framhjá því að ef farþegaflugvél laskast á Keflavíkurflugvelli er viðfangsefni fyrir sjúkraflutninga komið upp fyrir þolmörk og næsta alvöru móttaka er í Reykjavík

Það er því mikilvægt að verja með lögum tryggar flutningsleiðir og öryggi þeirra, bæði vegna sjúklinga og þeirra starfsmanna sem flutninga annast.

Tuga miljarða fjárfestingu í nýjum Landspítala má ekki stór skaða með þröngsýni eða uppgangi skammtíma stjórnmála, mannslífið hlýtur að vega þyngra.

 

Vegagerðin

flæði umferðar

Hraði umferðar


Nakinn veruleiki aldraðra

Þetta viðhorf um að aldraðir séu afætur og aumingjar sem eru baggi á hinum yngri er enn ríkt í þjóðasálinni, jafnvel þó aldraðir séu búnir að vinna sér inn framfærslufé í lífeyrissjóð.

Höfðingjarnir eru í stjórnum sjóðanna en greiðendur söfnunarfjár eiga oftast enga aðkomu að þessu sjálfsaflafé fyrir efri ár, þessi peningar eru notaðir sem áhættu fé fyrir rekstur höfðingjanna og vina en gamlingjarnir fá bara minna til framfærslu ef snillinga stóðið tapar hundruðum miljarða af annarra fé án afleiðinga.

Þrælmenni


Sögufölsun með þögn

Mikið er af skelfilegum grimmdarverkum í mannkynssögunni og lítið sem ekkert var í okkar kennslubókum eða birt í fjölmiðlum.
Fer ekki að koma að uppgjöri við fjölmiðla og yfirvöld menntamála vegna sögufölsunar með þögn, þarf ekki að uppfæra kennslubækurnar og setja inn raunveruleikann.

"4 May1978, South African planes flew low over the Cassinga camp, home to more than 3,000 Namibian refugees, spraying over 20,000 pounds of high-explosive bombs"

"This was a massacre that was largely forgotten due to western media’s refusal to admit on this incident. In the early 1970s in a small town of Angola, a large convoy of racist white apartheid South African army with the secret assistance from USA and Israel, massacres thousands of Angolans"

Fjöldamorð í Angóla


Af hverju er íbúðarhúsnæði svo andskoti yfirverðlagt?

Á sýnum tíma var farið eftir lögum sem gerðu sveitarfélögum það skylt að hafa lóðarverð ekki hærra en nam kostnaði við viðkomandi lóðir, sveitarfélöginn fundu að venju leið fram hjá þessum lögum með því að bjóða út lóðir sem skortur var á og því fóru þeir sem vildu byggja í það að yfirbjóða hvern annan sem sprengdi verðið upp. Á eftir fylgdu bankar og sjóðir sem dældu fjármagni í þennan iðnað og lánuðu líka fyrir lóðum sem ýtti verðinu enn hærra, sem í framhaldi var fylgt eftir með hærra láns og veðhlutfalli í byggingum. Bankar og sjóðir sem í græðgi sinn voru búnir að setja hættulega mikið af fjármagni inn í þetta kerfi voru og eru komnir í þá stöðu að verða að halda fasteignaverði upp í ofverðlagningu til að geta tryggt lánasöfnin og sýnt fram á ávöxtun lánasafna. Til að halda þessari rússnesku rúllettu gangandi er nauðsynlegt að hafa kaupendur til að taka á sig ævilanga greiðsluskyldu og sætta sig við að vera tekjuþrælar á kvíðalyfjum það sem eftir er.

Peningagildra

 

Og svo er það spurningin, hvaða leið er best að fara til að komast út úr þessu sjálfskaparvíti?


NATO "vinir" Íslands

Utanríkisráðherra hefur að undanförnu skjallað og lofað "varnarsamstarf" Íslands í fjölmiðlum sem innan flokks, enda stutt í kosningar.

Eru menn virkilega svona fokheldir í huga, hefur enginn skoðað söguna að baki þessara aðila. Skjalfestar sannanir um stríðsglæpi og svik, svo langt sem sagan nær og þetta stóð ógæfuþjóða vilja menn telja til vina.

https://www.amnesty.org/en/latest/news/2014/08/afghanistan-no-justice-thousands-civilians-killed-usnato-operations/

https://en.wikipedia.org/wiki/NATO_bombing_of_Yugoslavia

https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_war_crimes

https://en.wikipedia.org/wiki/United_States_war_crimes

https://en.wikipedia.org/wiki/2011_military_intervention_in_Libya

 

Og það er hægt að raða inn tilvísunum í fjöldamorð sem svik þessara vina sem utanríkisráðherrann lofar alla daga og vinnur við að draga hingað heim, svo þeir geti tryggt sér að Ísland og Evrópa taki á sig sprengjuregnið er stríðið sem þeim langar í hefst.


Axlar þetta fólk ábyrgð

Héraðsdómur Reykjavíkur vísar frá máli Eflingar gegn tveimur fyrirtækjum sem keyrð hafa verið í jörðina með röngum sakargiftum samkvæmt þessari frétt.

Nú er það bara spurning hvað mikið Efling þarf að greiða í bætur fyrir það tjón sem stéttarfélagið er búið að valda þessum fyrirtækjum sem og fyrir þau mannorðsmorð sem framin hafa verið með dyggri aðstoð fólks á netmiðlum sem sett hefur sig í dómarasæti án málsgagna.

Það er oft mjög opinberandi að lesa hvað fólk skrifar um sýna samborgara, skrifin segja margt um þann sem ritar en oftast ekkert um þann sem ritað er um.

Varðandi þennan málarekstur allan er líklegast að tveir til þrír öflugir lögfræðingar geti gert það að ábatasömu starfi fram að fyrningartíma ummæla að lögsækja þá sem tekið hafa þátt í þessum rógburði og mannorðsmorðum á netmiðlum.

Ég óska þeim sem setið hafa undir þessum áburði uppreisn æru og bóta þess tjóns sem orðið hefur.

Forustufólk stéttarfélaganna tapar hins vegar engu öðru en félagsgjöldum sinna félagsmanna.

Efling tapar dómsmáli

Málsgögn Héraðsdóms


Rödd konu með kjark

Áratugum saman hefur verið haldið að okkur lygaþvælu og uppspuna um óvininn ógurlega sem aldrei hefur sýnt okkur annað en vinsemd og vínáttu, hinn raunverulegi ófriðarseggur hefur hinsvegar ausið yfir okkur falsfréttum með dyggum stuðningi innlendra leppa sinna og náð ótrúlegum árangri með sýnum blekkingum við að öskra Úlfur Úlfur innan úr sauðagærunni sem hylur hann.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband