Vitleysingarnir orðnir hræddir

Hér hafa menn hamast við að koma upp skotmarki undanfarinn ár og svo eru þeir hræddir þegar á skotmarkið er miðað, er hægt annað en nota orðið vitleysingar um þennan litla hóp stríðsæsingarmanna sem vilja endilega efna til átaka og fórna okkar börnum og afkomendum.

Það er alveg víst að ekki eru þeir að hugsa sér eða sýnum viðkomu í fremstu víglínu, skríðandi um, öskrandi af kvölum, með sundurtættan líkama.

Stríð er ekkert líkt falsmyndum frá Hollywood verksmiðjunni og þeir sem kalla eftir slíku eru vanvitar.


mbl.is Telur Rússa hafa áætlanir fyrir Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stattu að baki mér skræfa

Er annað hægt en skammast sín fyrir Íslensk stjórnvöld sem að sjálfsögðu gera ekkert til að stöðva fjöldamorð Ísraela.
Með formann Vinstri Græna sem forsætisráðherra hefur Ísland farið að þjónusta kjarnorkukafbáta bandaríkjamanna, fjármagnað vopnaflutninga til Úkraínu og tekið þátt í að svelta Palestínumenn á gaza með frystingu framlags, stutt Ísraela á vettvangi Sameinuðu þjóðanna við atkvæðagreiðslur og yfirlýsingum.
Stutt og fjármagnað að hluta til bætta aðstöðu í herstöðinni á keflavíkurflugvelli, þannig að nú geta flugvélar sem bera kjarnorkusprengjur og þungavopn, athafnað sig ásamt þeim fjölda hermanna sem þarf til að þjónusta herflutninga.
Og nú er forustufólk í Sjálfstæðisflokk byrjað að tala um Íslenskan her, þar sem annarra manna börn verða fallbyssufóður.
Því það eiga talsmenn hervæðingar sameiginlegt, að að eru ekki þeirra börn né afkomendur sem eiga að fórna lífinu fyrir þeirra hugmyndir.Rettarhold


Að axla ábyrgð

Þeir sveitarstjórnar menn og konur sem á sínum tíma seldu Hitaveitu Suðurnesja til einkaaðila hljóta að vera stolt í dag.

Salan hefur reynst álíka gæfuspor og þeim sem pissar í skóna sína til að njóta hita í kuldatíð.

Einkaaðilar eru í rekstri til að afla tekna og ráða stjórnendur sem geta kreist sem mestar tekjur til arðgreiðslna á sem stystum tíma, menn sem hola reksturinn innan frá, selja merginn. Svona fyrirtæki enda alltaf sem tómur kassi án getu til að takast á við áföll og fyrirhyggja er oftast enginn því eigendur sjúga fjármagnið út úr fyrirtækinu sem hungraðar blóðsugur.

Oftast eru þetta erlendir fjárfestar sem hafa enga raun tengingu við Íslenskt samfélag og eru reknir áfram af óseðjandi hungrinu, græðginni í fjármuni óháð seinni tíma afleiðingum.

Gullgæsin sem Hitaveita Suðurnesja reyndist, hefur verið slátrað á altari græðginnar og við vitum öll hvaða stjórnmálaflokkur stendur fyrir því að koma öllum verðmætum þjóðarinnar til einkaaðila.

Nú þegar ekki er útlit fyrir arð mun gengið í sameignina og ríkissjóður blóðmjólkaður undir yfirskini almannavarna og þjóðaröryggis því hálf ónýtt Alþingi virðist skorta alla fyrirhyggju.

Við þekkjum þennan hugsanahátt og sjáum í bjargráðum fyrir Grindvíkinga, þar sem fjármálastofnunum verður tryggt allt sitt, en fasteignaeigendur látnir taka tapið.


mbl.is Heitt vatn í eðlilegt horf eftir viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjurnar hugrökku

Alveg magnað hvað menn eru fljótir að fella skjóta dóma þó aðeins liggi fyrir ásakanir frá þeim sem vilja stöðva greiðslur.

Þessi ákvörðun er í raun bein þátttaka í stríðsglæpum með því að svipta fólk möguleikanum á að afla sér fæðu.

Menn og konur geta talað út í eitt, en athafnir þeirra sýna okkur hvaða manneskja er undir grímunni.


mbl.is Hvaða lönd hafa fryst greiðslur til UNRWA?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skil vel gyðingahatur

Eftir að hafa fylgst með þessum barnamorðingjum sem telja sig yfir aðra hafnir sem guðs útvalda þjóð, verð ég að viðurkenna að ég fyrirlít þessa þjóð í dag.

Og ekki minna þá sem eru að réttlæta fjöldamorð herveldis sem bandaríkjamenn halda gangandi enda er landið í raun útibú þeirra í miðausturlöndum.

Þetta land öfgafólks á ekki að vera þátttakandi í neinni samvinnu vestrænna ríkja, þessu landi á að vísa á dyr og loka á öll samskipti því varla telst þetta fólk samvinnuhæft lengur.

Ekkert ríki virðist hafa getu til að fara þarna inn og stöðva fjöldamorðin og sameinuðu þjóðirnar virðast gagnslaus samkunda pappírstígra.

Gyðingum er tamt að nota fullyrðingar um hatur í þeirra garð ef þeir fá ekki að myrða án athugasemda, en siðblindir barnamorðingja hafa ekkert tilkall til siðfræði né eiga samúð skilið.405216545_4432550860303425_4080514115086650231_n


mbl.is Sakar íslensku þjóðina um gyðingahatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefum valfrelsi um Jólin

GrindavíkEr þetta ekki bara orðið gott, hvernig væri að hætta þessari endalausu forræðishyggju og leyfa fólki að vera heima hjá sér í Grindavík ef það vill.
Það má vel skipuleggja gott námskeið um viðbrögð við mögulegum atburðum, og leyfa svo fólki að ákveða sjálft hvort það fer heim eða heldur áfram að lifa sem flóttamenn í eigin landi.

Ísland er lifandi land og við getum aldrei verið viss um morgundaginn, þannig hefur það verið og mun verða um komandi aldir. Annað hvort tekur þú því sem hluta af lífinu eða ferð eitthvað annað í leit að stöðugleika.

Það þarf að leyfa Grindvíkingum að fá frið til að vinna úr stöðunni, gefum þeim val um framtíðina á eigin forsendum.
Veitum þann stuðning sem Grindvíkingar vilja og hættum þessari kjánalegu forræðishyggju, gefum þeim sjálfræðið og valfrelsið aftur.


Kurteisi og virðing

Fróðlegt að aka Hillary Rodham Clinton og kynnast umfangi svona heimsóknar, hún er merkileg og afkastamikil kona sem hefur gert margt gott. Hún kemur fram við alla af virðingu og kurteisi, hún á skilið það sama frá öðrum. Það er vel hægt að hafa skoðanaskipti við fólk án þess að grípa til lágkúru í orðavali, það er ekki það sem fólk segir eða ritar sem skiptir öllu, það er það sem þú gerir.
Er ekki sammála henni í pólitík, en það má hrósa henni fyrir marga hluti.Hér er slóð á hennar æviferil ef fólk vill kynna sér hennar feril: https://en.wikipedia.org/wiki/Bibliography_of_Hillary_Clinton

Þá er kominn hjá mér nýr kafli í lífsins reynslubók.Hillary


Er þetta vitrænt

Er þetta framkvæmd byggð á fagmennsku og þekkingu eða er verið að búa til atvinnubótavinnu fyrir "rétta" aðila.

Var hönnun og er framkvæmd byggð á verðtilboðum eða var handvalið af vinalista.

Stundum virðist fólk tapa vitrænni getu og framkvæma eitthvað frekar en viðurkenna fyrir sjálfu sér að það er ráðalaust.
Greiðandinn er ég og þú en njótandinn er miljarða gróðafyrirtækin, Bláa lónið og HS Orka sem er í eigu Jarðvarmi slhf. og sjóða í stýringu hjá Ancala Partners LLP. Eignarhlutur hvors um sig er 50%.
Við erum því að eiða 2,5 miljörðum að skattfé okkar í að byggja varnargarða utan um einkarekstur sem rakar inn miljörðum og svo getur enginn í raun staðfest að þessir garðar geri gagn því landið er allt á hreifingu upp og niður sem til allra átta.Sigdalur


mbl.is Frumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum vinnuveitandi Alþingis

Þingið er að vakna eftir mikinn þrýsting frá almenningi, þetta fólk er nefnilega í vinnu hjá okkur. Þingheimur virðist skynja að það skelfur ekki bara jörð, það er þungur skjálfti frá þjóð sem misbíður framkoma ríkisstjórnarinnar sem starfar á ábyrgð alþingis. Kl. 11.00 byrjar umræða um Palestínutillöguna. Umræðunni verða gefnir 2 klukkutímar sem skiptast á milli allra flokka.
Kl. 13.00 þann 9.11.2023 byrjar seinni hluti umræðunnar og atkvæðagreiðsla. Textinn er hér: https://www.althingi.is/altext/154/s/0514.html

Á kostnað annarra

Það á stríðsæsingarfólk um allan heim sameiginlegt, að það ætlar ekki sjálft að fórna lífi og limum eða þola þjáningarnar. Það ætlast til þess að aðrir gjaldi fyrir þeirra eigin orðhvata heigulshátt.Stríð


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband