Föstudagur, 9. maí 2008
Gleðilegt
Virkilega gleðilegt þegar fyrirtæki á landsbyggðinni nær svona samningi og getur byggt upp atvinnu á heimaslóð.
Til hamingju með það
![]() |
Kjarnabúð ehf fer í samstarf við þýska ferðaskrifstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. maí 2008
Mannorðsmorðinginn

Í gegn um tíðina hef ég nokkru sinnum hitt fyrir afskaplega þreytandi manngerð, sem ég kýs að kalla mannorðsmorðingjann, þessi manngerð er sífellt að ata auri á náungan og geta sér til um illar hvatir og innræti fólks almennt.
Þó 99,5% mannkyns sé í raun gott fólk, er mannorðsmorðinginn með það á hreinu að hlutfallið sé öfugt, eða að 99,5% mannkyns sé fólk sem hafi eitthvað illt að fela úr fortíð eða nútíðinni, vegna óupplýstra glæpa eða vegna annarlega hvata viðkomandi.
Þessir einstaklingar eru mikið viðloðandi hagsmunabaráttu þrýstihópa, en þrífast oftast best innan starfandi stjórnmálaflokka, þar sem hæfileiki þeirra til að ata auri á fólk ,nýtur sýn best og er oft töluverð eftirspurn á þjónustu þeirra.
Þessir mannorðsmorðingjar eru oft áberandi þegar miklir hagsmunir eru í húfi, þeirra verk felst í því að koma til bjargar ,ef rök með eða gegn, einhverju verki sem á að framkvæma, eru ekki nægjanlega góð eða eru almennt ekki til staðar, þá blómstrar mannorðsmorðinginn.
Mannorðsmorðingi ræðst aldrei beint á viðkomandi eða spyr hreint út, hann gefur hlutina í skin með tvíræðnum hætti og flytur óumbeðnar fréttir á milli fólks undir yfirskyni trúnaðar, hann ber oft upp á einstaklinga þungar sakir um jafnvel glæpi, en þegar hann er spurður af hverju viðkomandi hafi ekki verið ákærður eða hver hafi sagt honum þetta, fer mannorðsmorðinginn undan í flæmingi sökum þess að hann flytur ekki sannleik á milli fólks, né getur vísað á staðfestar heimildir söguburði sýnum og lygum til staðfestingar, oftast nefnir hann samt nafn einhvers, ef gengið er hart fram í að fá mannorðsmorðingjann til að vísa á heimilda manneskju fyrir þessum sögusögnum, sé það svo rakið áfram er oft annar mannorðsmorðingi heimildarmanneskjan og ef maður gefst ekki upp á að rekja endalausa slóð heimilda, er upphaf svona sögusagna oftast það að einhver ber fyrir sig að hafa heyrt á tal eða misskilið orð annarrar manneskju, en ekkert meint neitt illt með söguburðinum í upphafi.
Ein leiðin til að stöðva mannorðsmorðingja, er að ganga beint að viðkomandi og spyrja hreint út hvort viðkomandi sé að segja þetta á meðal fólks og hvaðan hann/hún hafi þessar upplýsingar, slíkt endar nánast alltaf í að mannorðsmorðinginn ber við misskilningi eða vísar sök á annan og leikur hneykslað fórnarlamb, en oftast er árangurinn því miður sá að þú ert sjálf/ur orðin næsta skotmark.
Besta leiðin er að mínu áliti að gleypa ekki allt sem sagt er, spyrja um heimildir og eða gögn sem sögumanneskja hefur til staðfestingar á sögu sinni og svo mín uppáhalds aðferð, ganga beint til þess sem verið er að segja sögur um og spyrja hvort sagan sé sönn, þetta er alversta útkoman fyrir mannorðsmorðingjann ,því hans eða hennar verk byggjast á því að fórnarlambið viti ekki um þær ásakanir sem viðkomandi er borin, fyrr en fræjum vantraustsins og lyginnar hefur verið sáð sem víðast.
Mannorðsmorðinginn veit sem er, að sögð orð verða ekki aftur tekin, og að sá sem trúði upphaflegu lyginni er oft alls ekki reiðubúin að viðurkenna eigin skerta trúverðugleika fyrir sjálfum sér, það blundar nefnilega lítið fræ í okkur öllum og það er okkar að vökva það ekki, þannig að fræið spíri ekki eða skjóti rótum og dafni.
Þannig fór nefnilega fyrir mannorðsmorðingjanum í upphafi, hann vökvaði fræið.
Góða helgi
Ps: Hér er vísun á snilld
http://blekpenni.blog.is/blog/blekpenni/entry/534624/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fimmtudagur, 8. maí 2008
Stöðvum ofbeldisdýrkun
Legg til að við stöðvum ofbeldisdýrkun og hættum að leysa vandamál með gasi, kylfum og rafbyssum.
Frekari vopnanotkun lögreglu mun ekki gera neitt annað en virka sem bergmál, andsvarið mun vera vopnaðir afbrotamenn sem munu fara að skjóta á móti, og þá erum við illa stödd.
Fólk ætti að styðja við Amnesty samtökin og hafna ofbeldi.
![]() |
Amnesty leggst gegn notkun rafbyssa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 8. maí 2008
Gefum rausnarlega
Gefum rausnarlega, nú er tilefni til að setja af stað söfnun fyrir fólkið sem á þarf að halda.
Heimsbyggðin á ekki að virða stjórnvöld sem banna neyðaraðstoð við eigin þegna, valdsjúkir einræðisherrar eiga engan rétt á að fórna fólki eins og peðum í tafli um völd, nær að fara þarna inn með sérsveitir og her en ráðast á Írak.
Þúsundir deyja á meðan pappírstígrar funda, á slíkt á ekki að hlusta.
Linkur á söfnun RKÍ : http://redcross.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?name=rki_styrkur_hjalparstarf_atak
![]() |
8 milljónir dollara þarf til að mæta brýnustu þörfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2008 kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. maí 2008
Er þetta ekki löglegt í dag
![]() |
Grunur um vændi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 5. maí 2008
100.000.000 fyrir 6 vikur
100.000.000 fyrir 6 vikur, það er það sem við borgum fyrir verndina.
Vernd frá ímynduðum óvini manna sem haldnir eru ofsóknarbrjálæði á háu stigi, en geta vegna stöðu sinnar gælt við tálsýnir og ímyndanir ofsóknarbrjálæðisins fyrir fé almennings, á meðan almenningur tapar eigum sýnum á báli óðaverðbólgu.
Það er spilað á meðan eignin brennur, minnir á fræga sögu að Neró í brennandi Róm.
Mánudagur, 5. maí 2008
Þó fyrr hefði verið
![]() |
Nefnd kannar starfsemi vist- og meðferðarheimila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 5. maí 2008
Þyngri refsingar og meiri harka
Þyngri refsingar og meiri harka lögreglu skilar svona samfélagi,
http://www.iht.com/articles/2008/04/23/america/23prison.php
ER ÞAÐ VIRKILEGA ÞETTA, SEM FÓLK VILL TAKA SEM FYRIRMYND
751 fangi á hverja 100.000 íbúa, eða yfir 2.100 fanga á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 4. maí 2008
Ofsóknarbrjálæði
Greinilega einhver með ofsóknarbrjálæði, verið að efla sérsveitina og fá erlendar hervélar til að fljúga um lofthelgina, hvar er þessi skelfilegi óvinur, hvar er hættan annar staðar en í höfðinu á hinum sjúklega ofnsóknarbrjálaða.
Ef menn eru svona hræddir við flug Rússana, er lang best að bjóða þeim að lenda í Keflavík og taka eldsneyti á vélarnar, það er þá hægt að ræða við þá yfir kaffibolla um samvinnu við hafísflug og eftirlit með fiskveiðiflotum í landhelginni, Rússarnir hafa ekkert nema samvinnu boðið hingað til.
Hvar er öll þessi ógn og hætta sem að okkur steðjar, getur einhver svarað því fyrir mig, ég er greinilega alveg blindur á alla þessa illu og ósýnilegu óvini sem bíða í leynum.
![]() |
Franskar herþotur vakta landið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 3. maí 2008