Vitleysingarnir orðnir hræddir

Hér hafa menn hamast við að koma upp skotmarki undanfarinn ár og svo eru þeir hræddir þegar á skotmarkið er miðað, er hægt annað en nota orðið vitleysingar um þennan litla hóp stríðsæsingarmanna sem vilja endilega efna til átaka og fórna okkar börnum og afkomendum.

Það er alveg víst að ekki eru þeir að hugsa sér eða sýnum viðkomu í fremstu víglínu, skríðandi um, öskrandi af kvölum, með sundurtættan líkama.

Stríð er ekkert líkt falsmyndum frá Hollywood verksmiðjunni og þeir sem kalla eftir slíku eru vanvitar.


mbl.is Telur Rússa hafa áætlanir fyrir Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stattu að baki mér skræfa

Er annað hægt en skammast sín fyrir Íslensk stjórnvöld sem að sjálfsögðu gera ekkert til að stöðva fjöldamorð Ísraela.
Með formann Vinstri Græna sem forsætisráðherra hefur Ísland farið að þjónusta kjarnorkukafbáta bandaríkjamanna, fjármagnað vopnaflutninga til Úkraínu og tekið þátt í að svelta Palestínumenn á gaza með frystingu framlags, stutt Ísraela á vettvangi Sameinuðu þjóðanna við atkvæðagreiðslur og yfirlýsingum.
Stutt og fjármagnað að hluta til bætta aðstöðu í herstöðinni á keflavíkurflugvelli, þannig að nú geta flugvélar sem bera kjarnorkusprengjur og þungavopn, athafnað sig ásamt þeim fjölda hermanna sem þarf til að þjónusta herflutninga.
Og nú er forustufólk í Sjálfstæðisflokk byrjað að tala um Íslenskan her, þar sem annarra manna börn verða fallbyssufóður.
Því það eiga talsmenn hervæðingar sameiginlegt, að að eru ekki þeirra börn né afkomendur sem eiga að fórna lífinu fyrir þeirra hugmyndir.Rettarhold


Að axla ábyrgð

Þeir sveitarstjórnar menn og konur sem á sínum tíma seldu Hitaveitu Suðurnesja til einkaaðila hljóta að vera stolt í dag.

Salan hefur reynst álíka gæfuspor og þeim sem pissar í skóna sína til að njóta hita í kuldatíð.

Einkaaðilar eru í rekstri til að afla tekna og ráða stjórnendur sem geta kreist sem mestar tekjur til arðgreiðslna á sem stystum tíma, menn sem hola reksturinn innan frá, selja merginn. Svona fyrirtæki enda alltaf sem tómur kassi án getu til að takast á við áföll og fyrirhyggja er oftast enginn því eigendur sjúga fjármagnið út úr fyrirtækinu sem hungraðar blóðsugur.

Oftast eru þetta erlendir fjárfestar sem hafa enga raun tengingu við Íslenskt samfélag og eru reknir áfram af óseðjandi hungrinu, græðginni í fjármuni óháð seinni tíma afleiðingum.

Gullgæsin sem Hitaveita Suðurnesja reyndist, hefur verið slátrað á altari græðginnar og við vitum öll hvaða stjórnmálaflokkur stendur fyrir því að koma öllum verðmætum þjóðarinnar til einkaaðila.

Nú þegar ekki er útlit fyrir arð mun gengið í sameignina og ríkissjóður blóðmjólkaður undir yfirskini almannavarna og þjóðaröryggis því hálf ónýtt Alþingi virðist skorta alla fyrirhyggju.

Við þekkjum þennan hugsanahátt og sjáum í bjargráðum fyrir Grindvíkinga, þar sem fjármálastofnunum verður tryggt allt sitt, en fasteignaeigendur látnir taka tapið.


mbl.is Heitt vatn í eðlilegt horf eftir viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband