Nokkrir gullmolar fyrir helgina

Nokkrir gullmolar úr læknaskýrslum:

-Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.

-Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.

-Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum.

-Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall...

-Eftir það var hún í samkvæmi...

-Fékk vægan verk undir morgunsárið...

-Hún hefur þroskast eðlilega framan til...

-Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember.

-Húðin var rök og þurr.

-Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr...

-Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring...

-Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf...

-Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum...

-Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur...

-Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.

-Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt...

-Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði...

-Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur...

-Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill...

-Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð...

-Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni...

-Það sem fyllti mælinn var þvagleki...

-Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa...

-Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.

-Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt....

-Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann...

-Sjúklingur borðar reglulegt mataræði...

-Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.

-Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.

-Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar...

-Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.

- Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.

-Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef...

- Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár.
 
- Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað - en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri...

-Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða...

-Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki...

-Sjúklingur hefur formlegar hægðir...

-Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala.

-Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring...

-Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár...

-Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.

-Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði...

-Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl.

-Sjúklingur lærði söngnám...

-Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli...

-Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.

-Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta var skemmtilegt.

Steingerður Steinarsdóttir, 29.2.2008 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband