Ósmekklegt

En mikil reiði er í mörgum, nú þegar hið nýja andlit löggæslunnar sést vel á mynd, og menn uppskera sem þeir sá.

Skipulagsbreytingar á lögreglu undanfarin ár, hefur miðast við að koma upp svona liði til að berja almenning sem mótmælir, verið er að breyta starfsaðferðum yfir til Ameríska módelsins og þar sem engir óvinir eru til verður að berja á samborgurunum.

Tilmæli til Dómsmálaráðherra eru ósmekkleg og ekki til að styrkja málstað þeirra sem vilja stöðva þetta brjálæði sem varalið og sérsveit eru, í landi án óvina.


mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

Við verðum samt að líta á þá vá sem alþjóðlegar glæpaklíkur geta valdið. Heimurinn er landamæralaus í dag og við getum ekki hagað okkur eins og við séum öðruvísi en aðrar þjóðir. Það er allsstaðar í heiminum verið að herða löggæsluna! Það er stór hættulegt að sjást ekki fyrir í þessum efnum finnst mér.

Jónína Benediktsdóttir, 24.4.2008 kl. 13:04

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Að opna landamærin og hleypa öllum til landsins án nokkurrar athugunar er ábyrgðarleysi, sem stjórnvöld stóðu fyrir sjálf.

Það er engin lausn að flýja svo afleiðingar eigin ákvarðana, með því að búa til sveit hrotta, sem er réttlætt með þeirri blekkingu að hún eigi að verja almenning, en eins og allstaðar hefur gerst í heiminum, eru svona sveitir einna helst notaðar til að berja almenna borgara sem dirfast að mótmæla stjórnvöldum.

Án samvinnu við almenning vinnst aldrei barátta gegn skipulögðum glæpum, svona sveitir hrotta fæla fólk frá samskiptum við lögreglu og skipulagðir glæpir verða þá viðurkenndur hluti að samfélaginu, þú sérð þetta til dæmis í Póllandi.

Lögreglan einangrast inn í bílum og inn á lögreglustöðvum, viðmót almennings til lögreglu verður fjandsamlegt, fólk fer að kaupa til baka þýfi frekar en leita til lögreglu, fólk sættir sig við að greiða verndargreiðslur til að fá frið fyrr ofbeldismönnum og þjófagengjum, mannsal og fíkniefnadreifing eflist vegna styrkari stöðu skipulagðra glæpagengja.

Þetta er búið að gerast víða um heiminn og greinilegt að menn ætla ekki að missa af svona góðum mistökum til að apa eftir.

Verst að þegar þessi skref eru stigin, er nánast ómögulegt að bakka, slíkt þýðir mörg ár í að endurvinna traust og samvinnu almennings, og á meðan er samfélagið opið fyrir glæpalýðinn.

Það þarf ekki nema vanhugsaðan dagspart til að eyðileggja áralanga samskiptavinnu.

Ég hef það á tilfinningunni að slíkt óheilla spor hafi verið tekið í dag.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 24.4.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband