Ofsóknarbrjálæði

Greinilega einhver með ofsóknarbrjálæði, verið að efla sérsveitina og fá erlendar hervélar til að fljúga um lofthelgina, hvar er þessi skelfilegi óvinur, hvar er hættan annar staðar en í höfðinu á hinum sjúklega ofnsóknarbrjálaða.

Ef menn eru svona hræddir við flug Rússana, er lang best að bjóða þeim að lenda í Keflavík og taka eldsneyti á vélarnar, það er þá hægt að ræða við þá yfir kaffibolla um samvinnu við hafísflug og eftirlit með fiskveiðiflotum í landhelginni, Rússarnir hafa ekkert nema samvinnu boðið hingað til.

Hvar er öll þessi ógn og hætta sem að okkur steðjar, getur einhver svarað því fyrir mig, ég er greinilega alveg blindur á alla þessa illu og ósýnilegu óvini sem bíða í leynum.


mbl.is Franskar herþotur vakta landið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... er ekki bara BB alveg að flippa út?... en Þorsteinn Valur, væri ekki ráð að stofna grasrótahreyfingu þeirra sem vilja ekki rafbyssur og aðra slíka vitleysu hér á landi?  Það mætti a.m.k. skoða hug bloggara á slíku... mér sýnist allir þeir sem ég les vera mjög mikið á móti þessum hugmyndum...

Brattur, 4.5.2008 kl. 22:51

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Líst vel á það að stofna samtök til að stöðva þessa ofbeldisvæðingu og sem einnig sjá um að veita löggæslunni aðhald, með því að fjalla um kvartanir vegna samskipta við lögreglu, hjálpa fólki til að leita réttar sýns.

Veit um dæmi þess að lögreglan neitar að taka við kvörtunum og kærum á starfsfélagana og leggur sums einstaklinga nánast í einelti, þurfti líka einu sinni að koma með 5 vitni og kæra lögregluþjón fyrir ranga skýrslugjöf vegna tjóns við framkvæmdir, sá var að hjálpa frænda sýnum til að fá bætur, fór að sjálfsögðu yfir í annað umdæmi til að kæra hanna og lenti í stappi með að fá að kæra manninn.

Það eru til svona samtök í Kaupmannahöfn, sem vel mætti sækja reynslu og ráðgjöf til.

Ættum kannski að ýta svona samtökum af stað

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.5.2008 kl. 23:10

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert sjálfkjörinn formaður Þorsteinn Valur.  Við styðjum þig með ráðum og dáð. 

Anna Einarsdóttir, 4.5.2008 kl. 23:41

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Æ nei Anna, vill frekar vera besti vinur aðal, ef þetta gerist

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.5.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband