Laugardagur, 28. janúar 2012
Vill vísa á annað lesmál
Saga manns sem ákvað að láta árita á skuldabréfið sitt í samræmi við konungstilskipun frá 1798
Hér er slóðin.
http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/1219878/?fb=1
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. janúar 2012
Svikin við lýðræðið
Það er einmitt þarna sem svikin við lýðræðið opinberast og B.B sem aðrir flokksmenn sjá eflaust ekki hvað er rangt við orðavalið, Það er ekki formanna stjórnmálaflokka að stjórna atkvæðum samflokksmanna sem hafa svarið eið að stjórnarskránni um að vera samkvæmir sjálfum sér.
Engin furða þó illa sé komið þegar þingmenn sverja eið sem þeir brjóta að skipan formanna flokkana, hvaða tuskur hafa þá þingmenn Sjálfstæðisflokks verið í gegn um tíðina ef B.B þekkir ekki önnur vinnubrögð.
![]() |
Hafa ekki stjórn á þingflokkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 9. janúar 2012
Þakklæti eða ?
Oft verður mér hugsað um orðið þakklæti, orð sem lýsi mínum tilfinningum gagnvart lífinu og þeim tækifærum sem mér hafa gefist til að byggja upp og efla þetta samfélag sem Íslensk þjóð er.
Mér finnst samt sárgrætilegt að vita til þess að hluti af minni og fyrri kynslóð hefur misfarist að færa þetta viðhorf áfram og þá sérstaklega til menntakerfisins, sem við byggðum upp saman landinu til hagsældar að því sem við álitum.
Á meðan við vorum að sinna daglegum störfum og greiddum mikinn hluta af okkar launum til sameiginlegra sjóða sem voru nýtir til að byggja upp samfélagið og greiða starfsmönnum sem kallast opinberir starfsmenn laun þá fór ýmislegt úrskeiðis.
Fólkið sem við kusum inn á Alþingi og treystum til að setja samfélaginu reglur og lög sveik okkur flest allt, í stað þess að sinna lagagerð þá fór þetta fólk að sinna eigin hagsmunagæslu og þeirra sem kostuðu með styrkjum þessa einstaklinga inn á þing.
Frambjóðendur komu fram á fundum og í fjölmiðlum ýmist ljúgandi og eða beitandi öðrum blekkingum til að svíkja út úr grandalausum kjósendum atkvæðin sem tryggðu þessum ímyndarsölumönnum vista á alþingi, þar úthlutaði þetta fólk úr sameiginlegum sjóðum miljörðum til að greiða völdum flokksmönnum nefndarlaun, flokkum rekstrarfé, sjálfu sér ofurlífeyrir og gerir enn.
Svo upptekin var þessi súri rjómi samfélagsins við að hygla sjálfum sér og fylgismönnum að innviðir samfélagsins fúnuðu, í gegn um árin hefur gangverk samfélagsins sætt sífeldum árásum og skæruliða vinnubrögðum valdsjúkra pólitíkusa sem flæmt hafa úr starfi alla þá sem veit hafa þeim mótspyrnu og þannig nánast eyðilagt eða lamað framkvæmdarvaldið með pólitískum embættaveitingum og spillingu. Enginn hefur axlað ábyrgð né mun gera sökum ekki laga frá alþingi.
Í stað þess að setja lög og reglur eru kjörnir fulltrúar búnir að ryðjast ítrekað í gegn um árin inn á svið framkvæmdavalds til að hygla flokksmönnum og byggja mynnisvarða um sjálfa sig, þetta sést best á opinberum byggingum sem drabbast niður og ekki er hægt að reka vegna fjárskorts á sama tíma og verið er að byggja nýja steypukassa.
Þetta fólk sem ítrekað hefur beitt almenning blekkingum til að komast yfir atkvæði og þannig til valda er að mestu sama fólkið og samþykkti að fella úr gildi þær varnir sem voru til staðar í lögum til að hindra hrun fjármálakerfis og fjársvelti svo eftirlitsstofnanir sem áttu að vara við og fylgjast með.
Þeir sem högnuðust mest á afnámi regluveldis styrktu svo ríflega flokkinn sem og frambjóðendur en svo mikil er siðblindan innan stjórnmálaflokkana að nánast enginn þar innan dyra sér eða viðurkennir að hann eða hún hafi gert neitt rangt í aðdraganda hruns. Enginn hefur axlað ábyrgð né mun gera sökum ekki laga frá alþingi.
Þá virðist háskólasamfélagið nánast hafa haft siðblindu sem námsefni fyrir endurskoðendur, viðskiptafræðinga, lögmenn og aðrar starfstéttir en sem betur fer hefur aðeins lítill hluti þessara nemanda lagt námsefnið á minnið. Þeir sem það gerðu unnu gríðarlegt tjón með því að finna skattaskjól sem og með bókhaldsbrellum byggðu upp ímynduð verðmæti sem hvergi voru til er á reyndi nema í bókhaldi blekkinga og spennti upp fölsuð verðmæti hlutabréfa.
Ítrekað hafa pólitísk afskipti og inngrip orðið til þess að nánast ónýtar kostnaðaráætlanir hafa verið kynntar til að afla samþykkis fyrir framkvæmdum sem að sjálfsögðu standast aldrei kostnaðarlega þegar á reynir. Ítrekað hafa forstöðumenn sem konur er stýra ríkisfyrirtækjum eða stofnunum komist upp með að brjóta þau lög sem nefnast fjárlög, án þess að fá áminningu eða sæta ábyrgð fyrir.
Á meðan hin almenni launþegi var upptekin við að byggja upp samfélagið sem við trúðum og treystum hinu opinbera kerfi fyrir að fara með þá sátu margir að svikráðum og nú vöknum við upp við þá staðreynd að búið er að stela miljörðum úr okkar sameiginlegu sjóðum, bæjarsjóðir sem ríkissjóður er ofurskuldsettir og við verðum að greiða.
Lífeyrissjóðirnir okkar sem með sýna sjálfkjörnu stjórnendur hafa tapað miljörðum á miljarða ofan, þar sitjum við uppi með skertan rétt sem þýðir lengri starfsævi, skertan aðbúnað og fátækleg eftirlaun. Enginn í stjórn Lífeyrissjóðanna hefur axlað ábyrgð né mun gera sökum ekki laga frá alþingi.
Við erum líka vakin upp við að fólk sem hér gat gengið að því vísu að það hefði stuðning heilbrigðis sem menntakerfis og samfélags til að mennta sig og ganga um nánast öruggt, frjálst og fengi tækifæri til að njóta umhverfisins sem og hefja rekstur eða skapa, vill ekki axla ábyrgð á eigin verkum.
Þakklætið fyrir fyrirhyggju þeirra sem á undan hafa farið virðist ekki ofarlega í huga þeim sem vilja þakka fyrir sig með því að ráðstafa til frambúðar þeim tækifærunum og auðæfum sem þeim voru færð í vöggugjöf og treyst til að auka við, varðveita og framselja til næstu kynslóða.
Þetta fólk vill framselja á óafturkræfan hátta sjálfræði okkar og framtíðar kynslóða til að tryggja eigin skammtíma hag, í stað þess að axla ábyrgð á gerðum sýnum og horfast í augu við afleiðingarnar á að flýja, sjálfselskan og sjálfhverfan er svo yfirgengileg að öllu skal fórnað á altari stundarþæginda.
Sá heimski gleymir ekki né fyrirgefur
Sá einfaldi fyrirgefur og gleymir
Sá hyggni fyrirgefur en gleymir ekki
Lærum af mistökum en gefumst aldrei upp, hvorki fortíð né framtíð gefur heimild til þessFimmtudagur, 4. ágúst 2011
Hvar eru peningarnir ?
"Alþingi samþykkti samgönguáætlun frá mér 15. júní í fyrra og Ögmundur Jónasson samþykkti hana eins og ég. Þar var gert ráð fyrir einum og hálfum milljarði í þetta verk og alltaf gert ráð fyrir þvi að þetta verk hæfist 2012. Ef peningarnir eru horfnir þá verður Ögmundur Jónasson að útskýra hvers vegna því sú ákvörðun hefur hvegi verið tekin"
http://www.ruv.is/frett/haegt-ad-byrja-a-nordfjardargongum
Fimmtudagur, 4. ágúst 2011
Það vantar viljan til verka
Hvers vegna eru ekki gerðir vinnuvegir að gangamunnum og farið að grafa þá vegskurði eða reisa þær girðingar sem gæti þurft að færa vegna verksins ?
Er búið að ganga frá málinu við landeigendur og ræða við sveitarfélagið um hvort nýta mætti útgröft úr göngum í landfyllingu á Eskifirði ?
Öll svona vinna kostar ekki mikið fjármagn en styttir undirbúningstíma verksins og sýnir íbúum að fara á í framkvæmdir en ekki selja þetta enn eitt skiptið til íbúana fyrir atkvæði til flokksins í næstu kosningum.
Þessi mafíu vinnubrögð sem fjórflokkurinn hefur stundað við hverjar kosningar að selja kjósendum nauðsynlegar samgöngubætur sem og margt annað gegn atkvæði til flokksins er í raun mjög svo upplýsandi um heiðarleika frambjóðenda.
Að draga ákvarðanatöku er ávísun á þessi hefðbundnu vinnubrögð stjórnmálamanna.
![]() |
Peningar fyrir göngum ekki til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 16. júlí 2011
Gerist bara á frjálsum markaði
Þetta gerist bara á opnum og frjálsum markaði, þar sem framboð og eftirspurn ræður verðinu.
Hér er markaðurinn í höndum banka sem halda verðinu uppi án tillits til raunverulegs verðmætis fasteignanna, vegna þess hvað veðsetningin er mikil
![]() |
Breskar fasteignir hrynja í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 2.12.2008 kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. júlí 2011
Það er svo, þetta er heima tilbúið
![]() |
Íslendingum sjálfum að kenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.3.2010 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. júlí 2011
Illa unnin frétt
Hvað hafa margar farþegaflugvélar verið framleiddar í austantjaldslöndunum og hvar er samanburður við til dæmis aðra framleiðendur og hver er notkunin.
Hvar lenti vélinni, á sjó eins og myndin gefur til kinna, á flugbraut eða landi.
Voru það vel þjálfaðir og faglegir flugmenn sem tryggðu lendingu án þess að farþegar meiddust, eða er bara hrósað flugmönnum frá vesturlöndun og þeir blásnir út sem hetjur en flugmenn austan gamla járntjalds eru ekki hrósins verðir.
Er virkilega enn sama gamla ryðgaða ritskoðunar forrit kalda stríðs í notkun hjá MBL, er þörf á endurmenntunarnámskeiði eða þarf að skipta út ritstjórn.
Að birta svona ekki frétt er dæmi um fúsk og vörusvik, við viljum fá staðreyndir en ekki órökstuddar fullyrðingar kryddaðar fordómum og forsjárhyggju, trúverðugleiki Íslenskra blaðamanna er nánast enginn og ef fréttamiðlar vilja byggja upp aftur trúverðugleika þá verða vinnubrögðin að vera trúverðug.
Mér er ekki sama um fréttamiðla og því geri ég kröfu um faglegan fréttaflutning en sé það hinsvegar stefnan að þróa Moggann inn á sömu braut og Séð og Heyrt þá er þetta rétt leið.
![]() |
Rússnesk flugvél í hremmingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. apríl 2011
En Vilhjálmur verðlaunaði Iceslave ?
![]() |
Gengur gegn lýðræðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 31. mars 2011