Hvenær fær þjóðin að kjósa

Ísland úr NATO og herinn burt er gömul krafa sem maður hló af á yngri árum en tekur nú undir með auknum þroska og skilningi á þjáningum fólks.

Ég vill þetta morðingjastóð sem lengst frá landinu en virði lýðræði ofar eigin skoðun, ég vill því að þjóðin fái að kjósa um veru okkar í NATO eða hvort við verjum okkur sjálf.

Hér gætum við byggt upp griðastað fyrir þá sem deila og tryggt frið sem öryggi vegna viðræðna deiluaðila, er ekki full þörf á tryggum hlutlausum stað í þessum heim ófriðar.

þjóðin hefur aldrei fengið að kjósa um veru okkar í NATO eða þátttöku í þeim félagsskap, er ekki komin tími á það.

það hefur að mestu verið geðþóttaákvörðun einstaka ráðherra hversu djúpt við sökkvum í þennan félagsskap og enginn heimild frá þjóðinni verið til staðar fyrir þeirri vegferð.

Ef þjóðin vill vera í þessu bandalagi þá skulum við hefja uppbyggingu aðstöðu, ef ekki þá burt.


mbl.is Metfjöldi herskipa hér við land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannleg stjórnun

"Menntun byggist ekki á titlum eða innrömmuðum skjölum á vegg til að sanna skólavist fyrir öðrum.

Menntun er samnefnari yfir viðmót, framkomu, viðhorf, orðaval og hegðan gagnvart öðrum í daglegu lífi."   (Þýðing á óþekktum höfund)

 

Starf stjórnenda hefur í raun lítið breyst í gegn um aldirnar þó blæbrigðamunur sé eftir tíðaranda, verkefni og árferði.

Þegar vel árar og næg atvinna er verða stjórnendur umburðalyndari og leggja mikið upp úr góðum starfsanda, þegar illa árar og offramboð er af starfsfólki virðist gamla óttastjórnunin ná yfirhöndinni og lítið sem ekkert umburðarlyndi verður til staðar í excel skjalinu um afköst og árangur.

Það er nánast endalaust verið að selja stjórnendum nám vegna nýrra sem eldri kenninga og tískustrauma í stjórnunarstíl, margt er gott að læra eða rifja upp en sumt er varla tímans eða peningana virði.

Oft finnst mér að í raun sé verið að kenna skammsýna græðgivæðingu sem skilar litlu öðru en tímabundnum ávinning sem skemmir langtíma hag beggja og eftir situr kulnaður starfsmaður og tapaður mennta sem þjálfunarkostnaður

Gættu vel að þeim fræjum sem sáð er í huga þér, því það bera ekki öll góðan ávöxt.

Digrir fræðslusjóðir hafa mikið aðdráttarafl fyrir kennsluiðnaðinn og væntingasalan magnast.

Komin með áratuga reynslu af stjórnun er mín niðurstaða sú að námsefnið er flest gott og hjálplegt en þegar upp er staðið er það einstaklingurinn sjálfur sem öllu skiptir, hæfileikinn að virða ólíkar manneskjur og getan til að tengjast annarri manneskju sem hið innra sjálf stjórnandans.

Manneskja sem ekki getur skilið eða lesið annað fólk, líðan þess og getu til að takast á við verkefni á ekki að starfa við stjórnun. Slíkur stjórnandi dreifir bara vanlíðan meðal starfsmanna, dregur úr getu þeirra sem vilja og starfsþroska

Mikil starfsmannavelta, tíð veikindi, einsleitt starfsmannaval og slæmur starfsandi er fylgifiskur slíkra stjórnenda sem eru í raun að valda þeim sem honum greiða laun töluverðu langtíma tjóni með neikvæðri stjórnun, sóun og skemmdum á starfsmanna auði sem langtíma skaða á orðspori.

Þvingað vinnuframlag hæfir frekar vélbúnaði en manneskjum, hugurinn fylgir ekki framlaginu og þá verða gæðin rýr sem takmörkuð auk þess sem lítil tryggð og hollusta leggst við verkefni.

Oftar en einu sinni hefur það verið mitt verkefni að vinda ofan af vinnustað þar sem samskipti eru komin í hnút og vinnustaða andinn orðin mannskemmandi með tilheyrandi vanlíðan allra.

Í öllum þessum tilfellum hefur tekist að greiða úr flækjum á einfaldan hátt með þeirri einföldu aðferð að greina, greiða og gefa.

Greina með því að lesa fólk og hlusta til að heyra öll sjónarmið og frá sem flestum hliðum

Greiða úr samskiptaflækjum með samtölum sem og teymisvinnu deilenda

Gefa fólki tækifæri til að sýna sig og getu sem og mennta, styrkja og rækta einstaklinginn sem hópinn.

Um leið og byrjað er að greiða úr samskiptaflækjum og ýtt er við fólki rakna hlutirnir oftast upp af sjálfu sér og fljótlega man ekki margur hvað var í veginum fyrir góðu samstarfi og jákvæðum vinnustaðaanda.

Við erum sem betur fer þeim eiginleika gefin að gleyma flest fljótlega leiðindum en muna hið jákvæða.

Það á að vera gaman í vinnunni.


Falsaða fólkið

Ein mesta bylting í samskiptum þessarar aldar er vefsvæðið Facebook sem hefur fært fólki aðgengi að gríðarlegu magni upplýsinga sem og opnað fyrir samskipti á milli landa sem þétt raðirnar hjá ættmennum sökum styttri boðleiða og uppfærslna á síðu hvers og eins.

Fjarskildir ættingja og vinir í fjarska eru komnir inn á skjá hjá manni og við fáum að njóta allskonar samskipta í nánast rauntíma sem ekki var mögulegt fyrir tíð vefsvæðanna.

Því miður er verið að eyðileggja þennan vettvang samskipta og tjáningar einstaklinga á margan máta, fjölmiðlar, stjórnmálamenn og fyrirtæki hella inn sýnum "sannleik" sem oftast er efni sem á að móta okkar skoðanir því sjálfstæð upplýsingaöflun er þessum aðilum oftast hættuleg.

Ljótast finnst mér að heyra að ráðningarfyrirtæki og vinnuveitendur séu að njósna um einstaklinga á vefnum og skrítið ef það fellur ekki undir friðhelgi einkalífs sem og persónuvernd því þetta er til dæmis ekkert ólíkt því að skoða atkvæðaseðil í kjörklefa.

Sorglegast finnst mér að fjöldi fólks er með falsaða vefsíðuna sökum þessa og er í raun að blekkja okkur hin, sérstaklega á þetta við um stjórnmálamenn og framapotara sem hanna heimasíðuna út frá þeirri ímynd sem þetta fólk telur að seljist best.

Persónulega treysti ég ekki einstaklingum sem setja svona framhlið upp, það er eitthvað að fela ef svo er og skrítin þörfin fyrir leynd.

Mikið væri nú magnað ef allir kæmu til dyranna eins og þeir eru í stað þess að vera alltaf að leika þann sem viðkomandi vilja að við höldum að þeir séu.


Handhafi "sannleikans"

Magnað að hlusta á Kastljós umræður í kvöld hjá RÚV , handhafa "sannleikans".

Við almenningur erum svo hlandvitlaus að það þarf að fara að ritskoða og takmarka upplýsingagjöfina til okkar.

Tryggja það að við fáum að heyra réttan sannleik því við getum ekki dregið sjálfstæðar ályktanir, rakið heimildir eða greint rétt frá röngu.

Stóri bróðir sem George Orwell spáði fyrir um 1984 vex og dafnar.

Stóri bróðir


Það sem ekki má ræða

Þegar pólitískur rétttrúnaður fer að stýra umræðu er margt þaggað niður með öfgafullri notkun hugtaka eins og rasisti ofl á netinu.
Vonandi fer fólk að ná þeim þroska að geta haft skoðanaskipti án þess að leiðast út í þannig hegðan vegna skorts á rekjanlegum staðreyndum.


mbl.is 58% dæmdra fyrir nauðgun erlendir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að nýta sér tilfinningar

Ég hef skilning á kjarabaráttu ljósmæðra sem þurfa eins og margar aðrar starfsstéttir betri kjör, en að byggja upp ótta á meðal verðandi foreldra og nota þær tilfinningar sem vopn í kjarabaráttu er fyrir mér óábyrg grimmd.
 
Það er það sem fólk gerir en ekki það sem það segir sem sýnir mér hver manneskjan er.

Afskaplega döpur lagasetning

Mis gáfuleg lögin sem Alþingi setur og samþykkir


mbl.is Spólandi vagnar stöðvuðu umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eiga ekkert erindi

Margir frambjóðendur eru farnir að gefa út digurbarkalegar yfirlýsingar um að tilteknir einstaklingar sem og flokkar séu ekki samstarfshæfir, á slíkt fólk eitthvað erindi í framboð?

Stjórnmál eru samtal einstaklinga með mismunandi skoðanir, einstaklinga sem hafa safnast saman í hóp með fólki sem hefur keimlíkar skoðanir og er sátt saman þó áherslur séu oft ólíkar.

Við gerum öll málamiðlanir á lífsleiðinni eða gerumst einbúar fjarri mannabyggð, frambjóðendur eru að taka að sér að vera líka talsmenn fyrir aðra en bara sjálfan sig.

Allt tal um að ætla ekki að tala við suma er því fyrir mér svona svipað og stimpla sig endanlega út úr stjórnmálum, slíkt fólk á ekkert erindi inn í stjórnmál þar sem fólk ýmist nær saman um málefni með samtali eða verður sammála um að vera ósammála


Að aumingjavæða samfélag

Merkilegt hvað mikið af atvinnuskapandi vandamálum er búið að koma á laggirnar með því að skilgreina fullorðið fólk sem ábyrgðalaus börn.

Móðir mín átti mig 2 mánuðum eftir 17 ára afmælið sem þótti ekkert fréttnæmt, faðir minn yrði skilgreindur sem barnaníðingur og líklega settur í betrunarvist í dag en hann var orðin 18 ára.

Konan mín var ófrísk 17 ára og ég hefði verið í sömu stöðu og pabbi vegna þessarar seinni tíma breytingar á lögum.

Sem betur fer sluppum við báðir við endurskilgreininguna á því hvenær maður er barn.

Við hjónin fengum foreldra okkar með til að skrifa undir kaupsamning fyrstu íbúðar því við vorum ekki orðin lögráða.

Fyrstu millilandasiglinguna fór ég 15 ára, 16 ára var ég á varðskipi og á hamfarasvæði innanlands en 17 ára komin á hamfarasvæði erlendis.

Í raun var ég samkvæmt viðmiðum dagsins í dag barn, þá var ég nægilega fullorðin til að axla fjárhagslega ábyrgð sem og starfa við björgunaraðgerðir án áfallahjálpar.

Fyrir mér er unga fólkið í dag að fá gríðarlega mikið af tækifærum og mikill meirihluti þess eru glæsilegir einstaklingar sem verið er að svipta þeim réttindum að vera ábyrgir og fullgildir einstaklingar í samfélaginu á meðal fullorðinna.

Vilji menn lækka kosningaaldur verður að fylgja viðurkenning á ábyrgð með, sá sem má kjósa á að geta boðið sig fram sem fullorðin ábyrgur einstaklingur.

Hverju hefur hærri ábyrgðaraldur skilað öðru en vandamálum sem skapað hefur fjöldann allan af opinberum störfum og nýjan markað fyrir greiningaraðila sem lyfsala.

Er ekki ágætt að endurskoða þessi lög og gefa ungafólkinu færi á að vera til.

https://youtu.be/fxNGI4lSBQQ

 


Verja skal virkið

Öllu er tjaldað til því verja skal virkið.

Virkið variðStéttarfélagið er látið borga kosningabaráttuna hjá valdinu og svo er verið að draga upp kommagrýluna, það gengur náttúrulega ekki að talsmenn láglaunafólks fari að skipta sér af eigin verkalýðsbaráttunni og heimta brauð út mánuðinn með frekju.

Hvað næst?, verður það ekki krafa um smjör og álegg líka?

vor-i-verko-songsveit-verkalysins


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband