Eðlileg viðbrögð

Finnst þetta vera  afskaplega eðlileg viðbrögð, fyrirtækjarekstur er ekki samfélagsþjónusta á félagslegum grunni, menn eru að leita hagnaðar.

Vilji Austfirðingar eða aðrir halda ákveðnum fyrirtækjum eða þjónustu á svæðinu, verður að beina til þeirra viðskiptum til að þau ílengist, annars pakka menn bara og fara með reksturinn þangað sem hagnaðar er von, svo einfalt er það.


mbl.is Iceland Express gefst upp á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Einmitt..

Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.6.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þetta er ekki svona einfalt drengir mínir.  Bókanir voru ágætar í fyrra, þegar flogið var á föstudögum og þriðjudögum.  Menn gátu valið um helgarferð eða að viðskiptaferð í miðri viku og svo náttúrulega viku eða meira ef svo bar undir.

En nú völdu IE vonlausan tíma fyrir þetta flug, síðdegis á laugardegi og komið til Köben seint um kvöld á laugardegi.  Flugþreyttir skriðu menn og konur til kojs og ekkert laugardagsrall.
 
Þeir flugfarþegar sem vildu áframhaldandi flug frá Köben urðu að gista og þeir sem völdu að vera í sumarhúsi misstu einn dag í upphafi og þurftu síðan að leita annara úrræða síðustu nóttina vegna þess að skiptidagar eru oftast á föstudögum.  Austfirðinar velja því aðra leið og heppilegri, þó hún sé ögn úrleiðis.

Hr. Imsland sagði á síðasta ári, að það væri mun heppilegra að hafa tvær ferðir í viku, - markaðslega séð.  Hann hafði rétt fyrir sér og þetta gekk eftir á sl. ári.  Hvað breyttist við að fara frá 2007 til 2008?

Annað kemur einnig til.  Lítill fugl hvíslaði að mér að aðrir höfðu hug á þessu flugi á minni og heppilegri vélakosti en það er öllum ljóst að tveir keppa ekki á þessum markaði.  Þess vegna var IE tilbúið að leika þann leik að "þykjast" ætla að fljúga til að skemma fyrir hinum þetta árið a.m.k.

Svo er að sjá að þeim hafi tekist það áætlunarverk sitt.

Benedikt V. Warén, 3.6.2008 kl. 23:29

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Svæðisútvarpið var með eftirfarandi umfjöllun þann 05.06.2008:

Ferðaskrifstofan Trans Atlantic á Akureyri skoðar nú möguleika á því að hefja beint flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar. Trans Atlantic annaðist millilandaflug um Egilsstaðaflugvöll frá árinu 2005 fram í febrúar á þessu ári, einkum fyrir verktaka sem komu að stórframkvæmdum í fjórðungnum.

Egill Arnarson stjórnarformaður fyrirtækisins segir unnið sé að því að skoða hagkvæmni flugsins, en til þess yrðu notaðar smærri þotur en vanalega tíðkast í millilandaflugi. Ef af verður vonast Egill til að flugið geti hafist innan tveggja vikna.

Benedikt V. Warén, 6.6.2008 kl. 18:56

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Happy weekend

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.6.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband