Til hamingju Steinunn með að sýna kjark

Það er gleðilegt að hún Steinunn tekur þetta skref og það er virðingavert þegar fólk hefur kjark til að breyta rétt.
Hvar eru hinir hugumstóru karlmenn sem þessu þora, það fer lítið fyrir kjark þeirra karlmanna sem við miljónum tóku en konurnar þora.
Stattu að baki mér skræfa geta þær konurnar nú sagt við Guðlaug Þór og hina kappana sem eru að sanna sig sem kjarklausa hálfgildings karlmenn.
mbl.is Fékk 12,7 milljónir í styrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

segðu .. hvað ætlar Guðlaugur að gera ? en Gísli Marteinn.. held að sá pési ætti að biðja um að fá að yfirgefa lista síns FLokks. En miðað við könnun morgunblaðsins kemst hann inn sem 5 maður.

Maður sem fer í nám erlendis á fullum launum frá borginni hefur ekkert að gera í vinnu fyrir skattborgara.

ThoR-E, 27.5.2010 kl. 19:26

2 Smámynd: Jón Pétur Líndal

Það er miklu fljótlegra að telja upp þá sem ekki ættu að segja af sér. Kannski þarf meira að segja ekkert að telja ef sú aðferð er notuð.

Jón Pétur Líndal, 27.5.2010 kl. 21:33

3 Smámynd: Brynjar Örvarsson

Gísli Marteinn hefur notið skjóls í fjölmiðlum sbr. grein á mbl.is í gær þar sem orðrétt stóð: ,,og í ljósi þess að styrkirnir eru ekki með þeim hæstu sem frambjóðendur þáðu og fyrirtækin styrktu vel flesta frambjóðendur". jafnframt hefur lítið farið fyrir umfjöllun um Guðlaug Þór upp á síðkastð. Af einhverjum ástæðum hefur mesti þrýstingurinn verið á Steinunni Valdísi og reyndar Þorgerði Katrínu líka. Spurning hvort þetta snúist um kyn viðkomandi?

En já, það er kominn tími til að skræfurnar segji af sér líka. Almenningur þarf að koma saman og beita þeim þrýstingi sem þarf til þess að allir segji af sér sem ástæðu hafi til.

Látum heyra í okkur og þrýstum á réttlæti!

Brynjar Örvarsson, 28.5.2010 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband