Sala Landsvirkjunar

Í drögum að ályktunum Landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem hefst núna í Apríl, er eftirfarandi orðalag:

Skynsamleg og hagkvæm nýting náttúruauðlinda Íslands er best tryggð með því að nýtingar- og afnotarétturinn sé í höndum einstaklinga og tímabært er að losa um eignarhald hins opinbera á orkufyrirtækjunum.Devil

Þetta er fín lausn á andstöðunni við stóriðjuna, einkavina væða Landsvirkjun og vísa svo á að málið sé ekki á vegum Ríkisvaldsins og að allar hindrandi aðgerðir skapi skaðabóta ábyrgð gagnvart fyrirtækinu.

Og boltin getur rúllað og rúllað, en eignalaus almenningur horfir á.

Búið er að gefa burt fiskin í sjónum, búið er að gefa burt arðbær Ríkisfyrirtæki og sjóði úr sameign þjóðarinnar og búið verður fljótlega að gefa burt orku landsins.

 Þetta er sem sagt orðið eignarlaust land, þar sem flestir búa í húsnæði sem er í eigu bankanna og fara bráðum að vakna upp við afleiðingarnar af þjófnaði aldarinnar.

Ísland er brátt orðið að vinnubúðum álvera og annarrar stóriðju, og framtíðarinnar lálaunaland

Skildi vera laust húsnæði á Grænlandi?Crying

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Græðgi, siðblinda, yfirgangur, frekja... stundum finnst mér landið vera eins og lítil gyðingastelpa uppi á háalofti. Hún hniprar sig út í horn og reynir að heyra ekki í gljáfægðum stígvélunum á hæðinni fyrir neðan. Hún er sæt og saklaus og við sem lifum 60 árum seinna vildum geta hjálpað henni, en hún er barn síns tíma og verður því að deyja.

Villi Asgeirsson, 8.4.2007 kl. 07:39

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Skemmtilega kaldhæðin húmor Villi og góð athugasemd.

Leit á bloggið þitt og myndskeið sem virðist vera endir, mér fannst þetta allavega góður endir á einhverju. Tónlistin og parið að fara er allavega gott atriði og svo er bara að bíða og sjá í hvaða samhengi þetta er sett.

Gangi þér vel

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 8.4.2007 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband