Hrósa ber lögreglunni

Hrósa ber lögreglunni fyrir fagmannleg vinnubrögð í málinu, loksins hafa menn sýnt fagleg og þroskuð vinnubrögð.

Lögreglan heldur sig til hliðar, en er tilbúin til aðgerða og hefur stjórn á sjálfum sér. Þeir grípa aðeins inn í atburðarásina ef nauðsynlegt er vegna öryggis, en framfylgja samt lögum af hógværð.

Mótmælendur hamast aftur á móti við að gera sjálfa sig og málstaðin hlægilegan, með barnalegum stælum og afkáralegum uppákomum.

Þeir eru búnir að grafa sýna eigin gröf, en eru of uppteknir af sjálfum sér til að hafa vit á því að hætta að grafa.

Þetta er rétta nálgunin hjá lögreglunni og þó ég hafi oft gagnrínt hana og mun gera svo áfram, þá eiga þeir mikið hrós skilið í þetta skiptið.

Svo er bara að vera duglegir að skrá atburðarásina og láta mótmælendur setja sjálfan sig í þá stöðu að hægt sé að neita þeim um komu leyfi til landsins.


mbl.is Mótmælendur hlekkja sig við tæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu, um hvaða barnlegu stæla og afkáralegu uppákomur ertu að tala? Og af hverju ætti að banna fólki að koma til landsins? Á að spyrja alla sem reyna að ferðast til landsins hvort að það sé á móti hinu og þessu sem er í gangi hér á landi og ef það svarar þeirri spurningu játandi, á þá að snúa því við á þeim forsendum?

Ég veit ekki betur en að þetta sé frjálst land og fólki hvort sem um er að ræða útlendingum sem koma hingað eða íslendingum frjálst að mótmæla því sem því sýnist og tjá eigin skoðanir á því sem því sýnist!

þú segist vera "Öfgalýðræðissinni sem sem æskir umburðalyndi á milli manna".

Mótmælin í dag voru ein af mörgum sem eiga eftir að fylgja og þar er verið m.a. að mótmæla því að vaðið sé yfir hausinn á þjóðinni í mjög stórum mál s.br. Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði þar sem fólk fékk ekki að kjósa um það mál. Þar veit ég ekki betur en að lýðræði hafi verið brotið.

Á dagskrá eru frekari álversuppbygging með frekari náttúruspjöllum sem ég vona að þjóðin fái að kjósa um. Það er einmitt það sem mótmælin ganga m.a. út á að reyna að knýja fram umræðu og vonandi kosningar í svona málum því það er jú það sem lýðræðið gegnur út á!

Mótmælandi (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 21:31

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Er ekki rétt að fólk lesi sér til um stjórnskipan lýðveldisins Íslands, áður en þeir grípa til aðgerða.

Hér kjósum við okkur fulltrúa í opnum kosningum, og öllum er heimilt að gefa kost á sér til framboðs.

Hér setja þessir fulltrúar lög og reglur fyrir samfélagið í umboði okkar kjósendanna.

Hér ræður meirihlutinn og minnihlutinn sættir sig við útkomuna ef löglega er að öllu staðið.

Minnihlutinn getur leitað til dómstóla ef skera þarf úr deilumálum.

Hér höfum við getað lifað herlaus og friðsöm þjóð í mörg hundruð ár, og gert á hundrað árum það sem Evrópa var heila öld að koma í verk.

Við þurfum ekki "hjálp" frá útlendingum til að leysa úr okkar innri málum á þennan hátt.

Þeim er nær að leysa risavaxin vandamálin heima hjá sjálfum sér, áður en þeir taka að sér ráðgjöf hér.

Allir friðarleitendur eiga að vera velkomnir til Íslands, og þeir sem virða okkar landslög, en ófriðarseggir eiga að halda sig heima.

Grunnur velmegunar og framfara er friður, hann skal halda.

Hvers vegna heldur fólk að okkur hafi gengið svona vel sem þjóð, er það ekki vegna innanlandsfriðar, löghlíðni og sáttar um form skoðanaskipta?

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 18.7.2007 kl. 22:05

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kárahnjúkavirkjun er risin og verður ekki stöðvuð.

Hinsvegar er gagnrýni á ferlið við ákvörðunartökuna mjög réttmæt sem og margt annað.

Við skulum þá snúa okkur að því að gera breytingar á lögum og reglum, til að svona lagað endurtaki sig ekki.

Innflutningur á erlendum vandræðabörnum er allavega ekki lausnin, heldur er sú ráðstöfun að eyðileggja áralanga baráttu umhverfissinna, og hefur orðið umhverfissinni verið að breytast yfir í lýsingarorð á vandræðafólki.

Kærar þakkir fyrir þetta

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 19.7.2007 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband