Að drulla yfir fólk

Landinn er fljótur að gleyma, er þetta ekki maðurinn sem lýsti þjóðinni sem hóp af drukknum vitleysingum og kvennaþjóðinni sem hóp af vergjörnum druslum, fyrir Amerískum sjónvarpsáhorfendum.

Skildi vera fullt hjá kappanum á Rex í kvöld, segjum við alltaf takk fyrir við þann sem notar okkur eins og skeinispappír eftir niðurgang.

Varstu óhlíðin


mbl.is Fer á Rex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skeinipappír?

a)  Þetta var nokkuð góð lýsing.

b)  Þetta var ekki neikvæð lýsing.

Ég kann t.d. mun betur við þessa lýsingu en sem einhverfra eskimóa í lopapeysum sem hlusta á Sigur Rós.  Og 'drukknir vitleysingar' og 'vergjarnar druslur' eru þín orð en ekki hans.

HP (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 09:20

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Ætla ekki að eltast við hans orðalag eða þýðandans, heldur frásögn gestsins af landi okkar og okkur sjálfum.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 31.12.2007 kl. 09:53

3 identicon

Ja hérna, sterklega til orða tekið. Þú lýsir sjálfum þér á eftirfarandi hátt: 

"Lýðræðissinni sem æskir umburðalyndi á meðal manna."

Ertu með svona óskýra sjálfs ímynd eða ertu bara að lýsa því hvernig þú vilt vera?

Linda (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 10:28

4 identicon

Hann kom hingað til að leita að þessu og sjá þetta, og er kominn til að sjá þetta aftur. Hann segir frá því sem hann sér. Er það slæmt?

Viðar Örn (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 11:24

5 identicon

já, það er satt að hann hafi kallað okkur Íslendinga eitthvað í þessum dúr. Held að málfarið skipti ekki öllu í þessum efnum. en hjá það er satt hvað við gleymum þessu fljótt. ég var búin að steingleyma þessu. en ég er ekki lauslát drusla sem dreymir um að komast nálægt tarantino um áramót. væri alveg til í að tala um Kill Bill við hann.

olga (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 12:09

6 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kæra Linda, þegar ég fæ gesti í heimsókn þá ætlast ég til þess að þeir séu ekki að úthúða mér og mínum ef þeir vilja koma aftur. Komi þeir aftur hinsvegar, finnst mér lágmarkskurteisi að biðjast afsökunar á fyrri orðum.

Það finnst kannski mörgum Viðar, að það sé sjálfsagt að frægðin gefi mönnum heimild til að vera falskir og undirförlir, en mér finnst allir menn jafnir og eiga að kunna almenna kurteisi.

Ekki skilja orð mín um umburðarlindi Linda, á þann hátt að ég láti allt yfir mig ganga, finnist mönnum hegðun heimilisfólks ámælisverð er sjálfsagt að ræða það og leita lausna, en gestir eiga ekki að gera sér upp ánægju með heimsóknina, og nota svo fyrsta tækifæri til að úthúða gestgjafanum sjálfum sér til framdráttar.

Og talandi um óskýra sjálfsmynd, þarf fólk ekki líka að hafa einhverja sjálfsvirðingu Linda, heldur þú að Íslenskar konur séu annars almennt ekki með neina sjálfsvirðingu. Ég er ekki tilbúin til að trúa því, né að svona framkoma sé talin í lagi.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 31.12.2007 kl. 12:13

7 Smámynd: Brattur

... við íslendingar eru ótrúlega fljótir að gleyma og fyrirgefa... sbr. í pólítiknni líka... við kjósum það sama yfir okkur aftur og aftur hvernig svo sum er farið með okkur... frægðin getur verið baggi og ekki allra að höndla hana... ég hef oft þakkað fyrir það, að "hafa ekki lent í því" að verða frægur...

... gleðilegt ár Þorsteinn!

Brattur, 31.12.2007 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband