Vonandi er þetta rangt

http://www.visir.is/article/20080223/FRETTIR01/80223007

Ef ekki, þá veltir maður fyrir sér lagaheimildum stofnanna Ríkisins, til að hefja sjálfstæða rannsókn vegna svona alvarlegra opinberra ásakanna.

Og þá bæði til að athuga hvort þetta sé rétt, og einnig hvort sá sem ber ásökun fram sé mannorðsmorðingi, eða borgari að sinna samfélagsskildu.

Svo er það líka spurning hvort þessi draumsýn um að Ísland sé spillingarlaust land, sé ekki bara tilkominn vegna skorts á siðareglum, reglugerðum og lögum sem skilgreina nánar hvað sé spilling.

Alla vega er þing sem vill setja siðareglur yfir starfsmenn, en hefur ekki sett sjálfu sér siðareglur, ekki trúverðugt, og þá má benda á reiksherbergi Alþingis sem dæmi um að þingið álíti reglur vera eitthvað sem það setji, fyrir aðra til að fara eftir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er bullandi spilling á Íslandi. 

Anna Einarsdóttir, 24.2.2008 kl. 12:09

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Því miður held ég að íslensk stjórnmál séu fyrst og fremst eiginhagsmunapólitík.

Hólmdís Hjartardóttir, 24.2.2008 kl. 14:58

3 Smámynd: Gísli Hjálmar

Hugtakið "spilling" er alltof viðtækt til að hægt sé að setja sérstök lög yfir það.

Hvað fellst í hugtakinu Spilling er bæði alltof huglægt og afstætt til þess að það sé bara "af eða á" í þeim efnum.

Þetta er allavega mín skoðun ...

Gísli Hjálmar , 24.2.2008 kl. 15:17

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Gísli.

Það er vel hægt að setja siðareglur og lagfæra lagaleg atriði, svona hlutir eru til hjá öðrum þjóðum og vel hægt að safna saman þessum gögnum, til að aðlaga að Íslensku samfélagi, jafnvel spurning hvort eitthvað félag eða samtök verði mynduð til að gera þetta fyrir stjórnmálaflokkana.

Kannski best að fara þá leiðina, og leggja svo afrakstur vinnunnar fram fyrir kosningar, til að kjósendur geti krafið frambjóðendur um að taka afstöðu til svona siðareglna.

Hef vantrú á að flokkarnir eigi að koma að svona vinnu með öðrum hætti en sem álitsgjafar.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 24.2.2008 kl. 20:25

5 identicon

Já ég var að lesa þetta í dag og mig undrar hvers vegna þetta var ekki í öllum fréttatímum dagsins. Blaðamenn eru ekki að vinna vinnuna sína ef þetta á bara að koðna niður og verða að engu. Það er eins og menn hugsi, æi Villi greyði. Þessi helvítis spilling allsstaðar er óþolandi, en hafiði tekið eftir því hvernig hvert svona málið á fætur öðru teigir anga sína inn í Sjálftökuflokkinn eða Sjálfstæðisflokkinn?

Valsól (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband