Skjótari viðbrögð

Held að enn einu sinni sé að koma í ljós að staðsetning allra þyrlna í Reykjavík er vitleysa.

Höfn og Akureyri ættu líka að vera staðir þar sem þyrlurnar séu staðsettar, því það munar um flugtímann.

Þyrla Gæzlunnar


mbl.is Vélin enn ófundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta þyrlumál ekki bara klassískt dæmi um það að maður á ekki að hafa öll egginn í sömu körfunni.

Gestur (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 23:49

2 identicon

Það hefði nú ekki bjargað neinu í dag að hafa þyrlu á Akureyri, þó síður sé. Svo er nú aldrei hægt að fullyrða hvenær menn eru seinir á vettvang í svona tilfellum.

thorben (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 01:13

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Thorben, það hefði kannski hjálpað að hafa vél á Hornafirði, en enginn getur fullyrt það.

Það virðist allt þurfa að vera í Reykjavík, eins og þar verði alltaf veður gott og ekkert geti komið fyrir.

Það þarf ekki mikla reiknisgáfu til að sjá að flugtími styttist verulega, við það að geta flogið frá Td Hornafirði eða Akureyri í útkall ef slys hefur orðið fyrir Norðan eða Austan landið, svo ekki sé talað um slys á landi.

Í vetur er búið að koma ítrekað fyrir að flug frá Reykjavík er út úr myndinni vegna veðurs, en vel hefur verið hægt að fljúga á aðra staði fyrir Norðan eða Austan.

Og þá sitja allar þyrlurnar, lamaðar á Reykjavíkurflugvelli engum til gagns.

Ekki mikil viska í svona andvaraleysis skipulagi, vona svo sannarlega að aldrei komi neitt fyrir á Reykjavíkursvæðinu, því þar er búið að hrúga nánast öllum neyðarviðbrögðum saman í eina körfu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 22.2.2008 kl. 01:44

4 identicon

Tíminn hefði styst enn meir, ef um 3000 tonna varðskip búið öflugri þyrlu hefði verið staðsett sunnan við landið.

Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 04:48

5 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Engin ástæða til annars en að hafa þyrlur víðar en í Reykjavík. Það hlýtur hver og einn að sjá út frá heilbrigðri skynsemi svona almennt séð - eða hvað

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 22.2.2008 kl. 09:35

6 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Pétur, það er rétt en það þarf líka að vera til staðar endastöðin sem er venjulega sjúkrahús.

Á Akureyri er gott sjúkrahús til staðar og vel má efla aðstöðuna á Hornafirði, því slys verða líka á landi.

En það hlýtur að fara að koma þetta varðskip okkar, þyrftum að eiga 2 svona skip.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 22.2.2008 kl. 10:42

7 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sammála.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.2.2008 kl. 11:08

8 identicon

Í guðana bænum þarna fórst maður rétt sunnan við landið, þetta er sjálfsagt saklaus ungur maður að reyna að bæta við sig flugtímum með því að ferjuflytja flugvél milli Ameríku og Evrópu.  En því miður hann var óheppinn og lenti í ýsingu eða einhverju því verra sem von er á á þessum árstíma.  Ég er að hugsa um að setja upp vefsíðu með upplýsingum fyrir ferjuflugmenn um hættur sem eru því fylgjandi að fljúga yfir Atlantshafið yfir vetrartímann.  Eflaust hefur aðilinn sem réði þessa tvo ógæfusömu flugmenn sem hafa farist síðustu daga við ferjuflug ekki spáð mikið í því hversu hættuleg þessi flugleið er og kaupandanum er jafnvel slétt sama þar sem hann fær vélina borgaða frá tryggingunum en flugmaðurinn, tja hann er látinn í sjónum og ástvinir hans fá ekkert nema hann sé sjálfur líftryggður. 

Þetta er sorgar saga, ég er sjálfur flugmaður og sem Íslendingur veit ég það að ég myndi aldrei reyna að fljúga svona litlum flugvélum yfir Atlantshafið á þessum árstíma.  Það ætti að vera skyldulesning fyrir ferjuflugmenn að lesa fyrstu bók Jóhannesar Snorrassonar, Skrifað í Skýin þar sem hann lýsir fyrstu ferjuflugum sínum frá Ameríku til Íslands yfir há vetur, þar má segja að hann hafði heppnina með sér að hafa komist lífs af en því miður þá hefur sú skemmtilega og fróðlega bók ekki komið út á 'útlensku'.  

Sigtryggur Sigtryggsson (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 00:55

9 identicon

Ég tek það samt fram að ég tel að þyrla eigi að vera staðsett í Reykjavík og á Akureyri.

Sigtryggur Sigtryggsson (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 01:10

10 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sigtryggur.

Svona atburðir eru engum gleðiefni, og því verðum við að gera það sem hægt er, til að koma í veg fyrir þá, með því að vera betur undir það búin, að fást við svona og svipaða hluti.

Staðsetning flugflota Landhelgisgæslunnar er atriði sem þarf að endurskoða með tilliti til styttingu flugtíma, veðurfars og fleiri atriða, jafnvel skoða með reglulegar tilfærslur á milli staða út frá ,til dæmis, staðsetningu fiskveiðiflotans og fleiri atriða.

Vestur,Suður og Austurland, á að skoða í þessu sambandi, vel er hægt að hafa fastar starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri, því þar eru öflug Sjúkrahús, en til dæmis Ísafjörður og Neskaupsstaður eða Hornafjörður, eru staðir sem flytja má vélarnar á, þegar það er talið henta vegna aðstæðna.

Mestu máli finnst mér samt skipta að menn komi út úr fílabeinsturnum andvaraleysis, og fari yfir málið.

Þetta er spurning um heildarsýn á leitar, björgunar og sjúkraflug á Íslandi öllu og nágrenni.

Þetta er líka spurning um að það sitji ekki allt fast í Reykjavík, sökum veðurs eða skammsýni og andvaraleysis.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 23.2.2008 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband