Sem læmingjar

Það er skelfilegt þegar heil þjóð hegðar sér sem læmingjar að fara fram af hengiflugi.

Er ekki ráð að fara að draga úr skuldasöfnun og greiða niður, til að vera áfram sjálfstæð þjóð.

Verða Íslendingar á útsölu, með landi og miðum.

Seldir hæstbjóðanda, eða gefnir gegn yfirtöku skulda.


mbl.is Íslendingar skulda mest í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Ég er sammála þér, fólk er kjánar að skulda svona mikið en það er gott ef fyrirtæki taka lán og fjárfesta vel.

En þetta er persónuleg ákvörðun fólks að eyða núna og borga af því á háum vöxtum til langs tíma.

Þetta er augljóslega eina kerfið sem hægt er að nota til að kaupa sér húsnæði en annars á fólk að læra að spara og hætta þessari sýndarmennsku.

Johnny Bravo, 9.3.2008 kl. 13:19

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Lagast þegar Norðmenn hirða okkur upp í skuldir, væri kannski fyrir bestu að fara aftur heim til Noregs, og borga bara andskotans skatta skuldina frá örófi alda.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.3.2008 kl. 13:46

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Við Íslendingar erum frekar undarlegur þjóðflokkur og spurning hvort við getum ekki halað inn pening til greiðslu skulda, með því að markaðssetja okkur sem slík og leyfa útlendingum að koma hingað til að skoða þetta fyrirbæri sem við erum.  Íslendingagarðurinn (sbr. dýragarðurinn)... allir að koma og sjá furðufyrirbærin

Anna Einarsdóttir, 9.3.2008 kl. 13:56

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Breyta landinu öllu í safarígarð, Anna

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.3.2008 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband